Ferðalag og ljósa - 20 Jún 2007

Best að segja umheiminum frá síðustu heimsókn til ljósu. Við fórum síðasta föstudag og allt leit vel út og eins og það á að vera. Næsta heimsókn eftir 4 vikur og þá fer ég líka í sykursýkispróf. Það er standard að allar fara í það hér.

Ég er ennþá á “fullu” í bumbuleikfimi. Það er voða gaman að hitta aðrar óléttar stelpur. Ein kom í seinustu viku og sýndi okkur prinsinn sem hún hafði átt viku fyrr en hún byrjaði að missa vatnið í leikfimitímanum svo að hún skellti sér bara beint upp á næstu hæð til að eiga barnið. Frekar skondið en hún var komin rúmar 38 vikur svo þetta var nú alveg eðlilegt allt saman og fæðingin gekk víst fullkomlega og hún þakkaði leikfiminni það!

Ég held að prinsessan mín hafi verið að snúa sér eitthvað. Hún hefur sparkað mig miskunnarlaust neðarlega hægra megin síðustu daga en núna eru spörkin ofarlega og vinstra megin.

Á föstudaginn höldum við svo til New York. Jeij. Það verður gaman!

Jóhanna Jóhanna

3 svör

  1. Góða ferð :)

    Sagði Gréta — 20 Jún 2007 @ 1:42

  2. Njótið New York ferðarinnar.
    Þetta er örugglega hörku dama sem vill láta vita vel af sér. Knús og koss. MAMMA.

    Sagði mamma — 20 Jún 2007 @ 2:18

  3. Hafið það gott í New York. bestu kveðjur mamma/tengdó

    Sagði mamma/tengdó — 20 Jún 2007 @ 5:47

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527