Leikskólaheimsókn - 14 Jún 2007

Við Palli fórum í heimsókn á einn leikskólann sem við erum búin að sækja um á fyrir litlu hnoðrastelpuna okkar. Ótrúlega skrítið fyrirkomulag eitthvað að þurfa að sækja um áður en barnið er fætt (og reyndar helst áður en barnið er getið). Svo þarf maður að sýna að maður hafi áhuga með því að bóka sig í svona túr og hringja reglulega og minna á sig. En okkur leist mjög vel á þennan leikskóla. Örugglega rosa skemmtilegt að vera þarna. Til dæmis á þriðjudögum og fimmtudögum á sumrin eru garðslöngudagar. Það var rosa stuð á krílunum sem mættu bara í sundfötum í leikskólann og leiku sér í vatninu svo settust þau bara öll á teppi og fengi hádegismat úti.

Jóhanna Jóhanna

4 svör

  1. Ómægod hvað allt er skrýtið í ammríku! Stórundarlegt. En þetta hljómar eins og mikil krúttmiðstöð - vona að hnoðrinn komist inn :)

    Sagði Arndís — 14 Jún 2007 @ 8:06

  2. Hahaha - þetta er bara megafyndið! Hvenær byrjar svo hnoðrastelpa á leikskólanum?

    Sagði Tóta — 15 Jún 2007 @ 2:54

  3. krúttó

    Sagði Gréta — 15 Jún 2007 @ 9:16

  4. Já, þetta er allt mjög skondið. En það er alveg óráðið hvenær hún myndi byrja og hvenær/hvort við komumst inn. En við sóttum um þrivar í viku frá 6 mánaða aldri. Finnst það samt ansi lítið til að vera fara á leikskóla en minnstu krílin eru samt alveg sér - eiginlega eins og dagmömmuvistun. Það voru nú nokkur miklu minni en það þarna þegar við komum í heimsókn.

    Sagði Jóhanna — 15 Jún 2007 @ 3:03

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527