Júní, 2007

iPhone röð og búðarferð - 29 Jún 2007

Jæja þá er blessaður iPhone-inn kominn í búðir og enginn virðist halda vatni yfir gripnum. Ég tók mynd af apple búðinni á 5th Ave í NY um daginn en áttaði mig ekki á því að það væri röð til að kaupa iPhone (5 dögum fyrir sölu). Ég náði hins vegar nokkrum myndum af röðinni á Walnut St. hérna rétt hjá okkur, mig grunar að biðin hafi ekki verið jafnlöng.

iphone3.jpg

Apple búðin í NY

iphone1.jpg

Apple búðin í Pittsburgh

iphone2.jpg

Hluti af röðinni í Pittsburgh

Áðan skelltum við okkur í barnabúðina Babies’R'us sem er á stærð við Rúmfatalagerinn og stútfull af dóti. Stæðin næst búðinni voru frátekin fyrir verðandi mæður.

staedi.jpg

Við slógum ekki hendinni á móti því!


2 svör
New York ferðin í myndum - 27 Jún 2007

Nokkrar myndir frá New York ferðinni okkar um helgina. Við komum til New York um miðjan dag á föstudegi. Fyrsta daginn slöppuðum við af í Brooklyn og gistum hjá mömmu vinkonu minnar. Við fórum og fengum okkur ís um kvöldið og sáum yfir til Manhattan:

brook1.jpg

Næsta dag héldum við inn á Manhattan og eyddum mestum tíma downtown og í Greenwich villiage þar sem við gistum. Við fórum í smá bátsferð og sáum Frelsisstyttuna:

boat2.jpg

boat1.jpg

Um kvöldið borðuðum við svo í Little Italy og fengum æðislegan mat og þreyttan þjón:

dinner1.jpg

Við röltum svo til baka og á leiðinni stoppuðum við í nokkrum búðum og ég keypti mér skó og Palli buxur. Ég nennti samt ekkert að skoða neitt mikið í búðir enda ekki séns að ég kaupi mér föt núna.

Næsta dag byrjuðum við á að fá okkur kaffi og muffu upphaldsstað Abby. Það kom okkur á óvart hversu ódýrt kaffið og djúsinn minn var enda í New York en það er víst ekki allt dýrt í New York maður þarf bara að vita hvert á að fara. Eftir það héldum við í MoMA (Museum of Modern Art) og sáum meðal annars Sierra sýninguna. Næsta mynd er af fólki að labba inn í einn af skúlptúrunum í garðinum á safninu og síðan ein of mér og Abby:

moma1.jpg

moma2.jpg

Við röltum svo í Central Park og fengum okkur ís. Síðan var bara haldið aftur út að borða og næsta dag skelltum við okkur upp í Empire State. Hér koma nokkrar af útsýninu:

emp1.jpg

Útsýni í átt að downtown, engir Tvíburaturnar

emp2.jpg

Chrysler byggingin

emp3.jpg

Við og Chrysler byggingin fyrir miðju

emp4.jpg

Fullt af leigubílum


2 svör
Ferðalag og ljósa - 20 Jún 2007

Best að segja umheiminum frá síðustu heimsókn til ljósu. Við fórum síðasta föstudag og allt leit vel út og eins og það á að vera. Næsta heimsókn eftir 4 vikur og þá fer ég líka í sykursýkispróf. Það er standard að allar fara í það hér.

Ég er ennþá á “fullu” í bumbuleikfimi. Það er voða gaman að hitta aðrar óléttar stelpur. Ein kom í seinustu viku og sýndi okkur prinsinn sem hún hafði átt viku fyrr en hún byrjaði að missa vatnið í leikfimitímanum svo að hún skellti sér bara beint upp á næstu hæð til að eiga barnið. Frekar skondið en hún var komin rúmar 38 vikur svo þetta var nú alveg eðlilegt allt saman og fæðingin gekk víst fullkomlega og hún þakkaði leikfiminni það!

Ég held að prinsessan mín hafi verið að snúa sér eitthvað. Hún hefur sparkað mig miskunnarlaust neðarlega hægra megin síðustu daga en núna eru spörkin ofarlega og vinstra megin.

Á föstudaginn höldum við svo til New York. Jeij. Það verður gaman!


3 svör
Leikskólaheimsókn - 14 Jún 2007

Við Palli fórum í heimsókn á einn leikskólann sem við erum búin að sækja um á fyrir litlu hnoðrastelpuna okkar. Ótrúlega skrítið fyrirkomulag eitthvað að þurfa að sækja um áður en barnið er fætt (og reyndar helst áður en barnið er getið). Svo þarf maður að sýna að maður hafi áhuga með því að bóka sig í svona túr og hringja reglulega og minna á sig. En okkur leist mjög vel á þennan leikskóla. Örugglega rosa skemmtilegt að vera þarna. Til dæmis á þriðjudögum og fimmtudögum á sumrin eru garðslöngudagar. Það var rosa stuð á krílunum sem mættu bara í sundfötum í leikskólann og leiku sér í vatninu svo settust þau bara öll á teppi og fengi hádegismat úti.


4 svör
Brúðkaup - 10 Jún 2007

Við fórum alla leið til New Jersey til að vera viðstödd brúðkaup vinkonu minnar. Þetta var alveg rosalega gaman og flott allt saman. Hér koma nokkrar myndir:

vid.jpg

Við fyrir utan rútuna sem flutti gesti frá hótelinu í brúðkaupið

gina_dad.jpg

Faðir brúðarinnar og brúðurin

ceremony.jpg

Brúðarmeyjar, brúðhjón og prestur í athöfninni

gina_steve.jpg

Orðin hjón

married.jpg

“The newly weds”

vendir.jpg
Vendirnir

cake.jpg

Kakan og vendir brúðarmeyjanna

gina_eg.jpg

Ég og brúðurin


3 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527