20 vikur og hnoðri í stuði - 26 Maí 2007

Þá er meðgangan hálfnuð - ótrúlegt. Og það er líklega von á lítilli prinsessu í október :-) Ég held að fleiri hafi giskað á stelpu og sumir í fjölskyldunni voru meira að segja alveg vissir. Við Palli höfðum það líka á tilfinningunni fyrir sónarinn.

Litlan er í miklu stuði núna og sparkar og sparkar :-) Ég held hún sé svona kát með ísinn sem ég var að borða. Það hafa komið nokkur kröftug spörk undanfarna daga svo kröftug að Palli gat fundið þau :-) Alveg yndisleg tilfinning!

Jóhanna Jóhanna

3 svör

  1. Þetta er yndisleg eins og þú segir Jóhanna mín. Þú varst nú líka ansi mikill stuðbolti og oft ekki svenfsamt um nætur fyrir þér. Knús og koss til ykkar. Mamma og tengdó..

    Sagði mamma — 27 Maí 2007 @ 4:55

  2. Sæl frænka og Palli.
    Ég var búin að heyra að von væri á litlum hnoðra í Ameríkunni. Sé á varfri mínu að það er stelpa. Innilega til hamingju. Gaman að sjá að allt gengur vel hjá ykkur.
    Af okkur er allt fínt að frétta.
    Sjáumst.
    Kær kveðja
    Aðalbjörg

    Sagði Kveðja úr Reykjahlíðinni — 28 Maí 2007 @ 5:31

  3. Mikið er gaman að fá að fylgjast með þessari einstöku upplifun að finna litla lífið þroskast og dafna með öllu sem því fylgir. Prinsessan litla á nú þegar aðdáendur austan hafs og vestan - ekki slæm byrjun það :)
    kveðja til ykkar allra mamma/tengdó

    Sagði mamma — 29 Maí 2007 @ 4:51

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527