- 18 vikur 4 dagar - sónar og ljósa - 16 Maí 2007
-
Fórum í sónar í dag og litli hnoðrinn var bara fullkominn í alla staði :-), allt eins og það á að vera. Hjartslátturinn var 140 slög (var 150 síðast), 3 æðar í naflastrengnum, hjartað vinstra megin og allar lengdarmælingar passa saman (höfuð, búkur, lappir, hendur, o.s.frv. í réttum hlutföllum). Fylgjan er framstæð en ekki fyrirstæð og það er bara mjög gott en þýðir að kannski finn ég hreyfingar aðeins seinna. Krílið var nú ekki mjög samvinnuþýtt og klemmdi lappirnar vel saman. En sónarhjúkkan hristi það aðeins til og gat séð að líklega er von á … allir að giska áður en við segjum frá.
Eftir sónarinn fórum við og hittum ljósmóðurina og fengum að vita að allar rannsóknirnar (þ.e. blóð-, þvag- og krabbameinsrannsóknirnar) sem gerðar voru á mér síðast (fyrir fimm vikum) voru eðlilegar og ég er í blóðflokki O+ svo að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af rhesusmisræmi. Eins og síðast þá var blóðþrýstingurinn minn 100/70 og engin óeðlilegur sykur eða prótín í þvagi. Ég hafði líka bætt hæfilega á mig og er orðin 61kg, búin að þyngjast um 5 kg frá því fyrir meðgöngu. Ég er um það bil að ná Palla í þyngd!
Sónardagsetning og blæðingadagsetning pössuðu fullkomlega saman, svo að settur dagur er 13. október.
Næsta heimsókn til ljósmóður er svo eftir 4 vikur, föstudaginn 15. júní.
Ég lofa svo að þessi síða er ekki að breytast í barnasíðu :-)
-
Jóhanna
9 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Yndislegt, hvað allt gengur vel.
MAMMA.
Sagði mamma — 16 Maí 2007 @ 12:01
Til hamingju enn og aftur :D Bíð rosa spennt… það verður gaman að fá að sjá bumbumyndir. Ég held að þetta sé stelpa þar sem það virðist vera málið í fjölskyldunni að undanskildum honum Halldóri ;)
Sagði Helga Dóra — 16 Maí 2007 @ 12:23
Frábært að allt gengur vel. Við Haukur giskum á stelpu :)
Sagði Arndís — 16 Maí 2007 @ 1:39
Ég giska á strák! Síðan má alveg breytast í barnalandssíðu mín vegna - þetta er svo spennó :D
Sagði Tóta — 16 Maí 2007 @ 4:59
VÁ!! Æðislegt! Gott að heyra að allt gengur vel. Ég ætla líka að giska á stelpu, er alveg viss um að 3ja prinsessan bætist í vinahópinn ;)
Oooo… ég sakna ykkar svo mikið þegar svona spennandi er í gangi. Langar svo að sjá þig með kúlu!
Sagði Guðlaug — 17 Maí 2007 @ 1:39
Til hamingju með þetta allt saman, ég giska á að þetta sé strákur.
Kveðja frá Brúnastöðum
Sagði Bryndís — 17 Maí 2007 @ 7:00
Innilegar kveðjur. Giska á strák.
Langar mikið til að geta knúsað ykkur öll. Kveðja amma Helga…
Sagði AMMA-Hæðargarði. — 17 Maí 2007 @ 7:22
Til hamingju! Giska á að þetta verði stelpa :)
Kveðja
Álfheimafólkið
Sagði Kristín — 17 Maí 2007 @ 10:08
Hæhæ
Til hamingju með krílið;) Rosa gaman að heyra að allt gengur vel.
Kíki svona annað kasti á ykkur hérna á netinu:)
Kveðja Oddný
Sagði Oddný vinkona Grétu — 17 Maí 2007 @ 4:01