Lítill laumufarþegi - 14 Maí 2007

Það eru stórar fréttir hérna frá Pittsburgh. Eins og margir útvaldir og eflaust fleiri hafa frétt þá er von á litlum hnoðra í heiminn í Pittsburgh um miðjan október - mikil gleði :-)

Allt hefur gengið rosalega vel og í síðustu skoðun, sem var fyrir fimm vikum, var hnoðrinn bara sprækur og sló litla hjartanu sínu 150 sinnum á mínútu. Næsta skoðun hjá ljósmóður og sónar er á miðvikudaginn í þessari viku. Ég hlakka til! Og vonandi fáum við að vita að allar rannsóknirnar sem gerðar voru síðast hafi komið eðlilega út. Reyndar væri hringt og maður látinn vita ef svo væri ekki en samt alltaf betra að heyra það í eigin persónu.

Ég er alveg rosalega nett enn þá svo engin bumbumynd hefur verið tekin. Fólk sem ekki þekkir mig vel tekur ekki eftir neinu. Ég er samt búin að þyngjast um 5 kíló, sem hafa öll farið framan á mig enda kemst ég vel í öll fötin mín en get ekki hneppt efstu tölunni á gallabuxunum mínum. Ég er búin að splæsa á mig nokkrum óléttutoppum og -bolum af því að allir mínir bolir eru orðin of stuttir.

Ég er í mömmuleikfimi tvisvar í viku. Það er mjög skemmtilegt og erobikkið er svo hægt að ég næ bara öllum sporunum og er satt að segja ekki klunnalegust (enn sem komið er)! Námskeiðin eru fjórar vikur og núna vita 17 af 20 stelpum kynið og 15 af þessum 17 erum með strák og bara 2 með stelpu - frekar fyndið. Ég er ein af þeim sem ekki veit, a.m.k. ekki enn þá.

Jóhanna Jóhanna

7 svör

  1. Hlakka til að frétta af skoðun og sónar á miðvikudaginn. hafðu það sem allra best - og þið bæði :)
    tengdó og Jón

    Sagði mamma — 14 Maí 2007 @ 5:38

  2. Aftur innilega til hamingju - þetta er ægilega spennandi :)

    Ætlið þið að fá að vita kynið, að því gefnu að krílið verði samvinnuþýtt, í vikunni? :)

    Sagði Arndís — 14 Maí 2007 @ 7:37

  3. Ji - en spennó. Hljómar allt ótrúlega vel ;)

    Sagði Tóta — 15 Maí 2007 @ 3:18

  4. Gangi ykkur vel á morgun Jónanna mín .
    Knús og koss frá mömmu til ykkar.

    Sagði mamma — 15 Maí 2007 @ 8:47

  5. Já, við ætlum að reyna að kíkja í pakkann ;-) Það er alla vegana planið núna, en þetta er alfarið Palla ákvörðun svo það er aldrei að vita nema hann skipti um skoðun.

    Endilega allir að giska á þetta, þá verður svo extra gaman að segja frá!

    Sagði Jóhanna — 15 Maí 2007 @ 1:38

  6. Eg veit ekki af hverju en eg fann tetta a mer. Hvad get eg sagt, eg er skyggn. Til hamingju!!!

    Sagði Matti — 15 Maí 2007 @ 3:07

  7. Takk, Matti! Já, ætli þú sért ekki bara skyggn.

    Sagði Jóhanna — 15 Maí 2007 @ 9:50

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527