- Eins og þruma … - 31 Maí 2007
-
Sólin hefur skinið miskunnarlaust á okkur undanfarnar tvær vikur. Það var næstum óbærilegt að labba í skólann í dag vegna hita og samt er rakinn ekki ennþá kominn. Þetta breyttist núna fyrir örstundu þegar hlussudropar féllu og þrumurnar voru ekki langt undan. Ég finn lítið fyrir þessu hérna á skrifstofunni minni, en Jóhanna var á leið í leikfimitíma þegar þetta skall á og blotnaði frá toppi til táar á nokkrum sekúndum.
Ég náði mynd af ósköpunum á farsímanum, þetta var allt þurrt 5 mín áður.

-
4 svör
Maí, 2007
- 20 vikur og hnoðri í stuði - 26 Maí 2007
-
Þá er meðgangan hálfnuð - ótrúlegt. Og það er líklega von á lítilli prinsessu í október :-) Ég held að fleiri hafi giskað á stelpu og sumir í fjölskyldunni voru meira að segja alveg vissir. Við Palli höfðum það líka á tilfinningunni fyrir sónarinn.
Litlan er í miklu stuði núna og sparkar og sparkar :-) Ég held hún sé svona kát með ísinn sem ég var að borða. Það hafa komið nokkur kröftug spörk undanfarna daga svo kröftug að Palli gat fundið þau :-) Alveg yndisleg tilfinning!
-
3 svör
- New York, New York - 24 Maí 2007
-
Við Palli ætlum að skella okkur í helgarferð til New York, 22.-25. júní. Ætlum að heimsækja vinkonu mína sem var postdoc hér í fyrra en er núna NY. Hún er fædd og uppalinn í NY svo að þetta verður gaman. Við erum að vona að pabbi hennar fari út úr bænum svo að við getum gist í flottu íbúðinni hans í Greenwich Village, sjáum til.
Fyrst þarf ég hins vegar að ná eins og einu erfiðu prófi. O, ég er að farast úr stressi, það er svo leiðinlegt að lesa en litla krílið mitt hressir mig nú við af til með því að gefa mér gott spark :-)
-
2 svör
- Maíheimsókn - 20 Maí 2007
-
Nokkrar myndir úr heimsókn mömmu og pabba frá lok apríl/byrjun maí.

Að borða ostaköku á South Side

Við Niagara fossa í Kanada

Mamma og pabbi við fossana

Út að borða með útsýni yfir fossana sem voru upplýstir

Fórum “bakvið” fossana

Gönguferð í Ohio Pyle

Pabbi og Palli í Ohio Pyle eftir nestispásu

Við mamma í Ohio pyle
-
6 svör
- 19 vikna bumba - 19 Maí 2007
-
Skelltum okkur í Schenley Park í dag og Palli smellti af nokkrum myndum:

-
8 svör
- 18 vikur 4 dagar - sónar og ljósa - 16 Maí 2007
-
Fórum í sónar í dag og litli hnoðrinn var bara fullkominn í alla staði :-), allt eins og það á að vera. Hjartslátturinn var 140 slög (var 150 síðast), 3 æðar í naflastrengnum, hjartað vinstra megin og allar lengdarmælingar passa saman (höfuð, búkur, lappir, hendur, o.s.frv. í réttum hlutföllum). Fylgjan er framstæð en ekki fyrirstæð og það er bara mjög gott en þýðir að kannski finn ég hreyfingar aðeins seinna. Krílið var nú ekki mjög samvinnuþýtt og klemmdi lappirnar vel saman. En sónarhjúkkan hristi það aðeins til og gat séð að líklega er von á … allir að giska áður en við segjum frá.
Eftir sónarinn fórum við og hittum ljósmóðurina og fengum að vita að allar rannsóknirnar (þ.e. blóð-, þvag- og krabbameinsrannsóknirnar) sem gerðar voru á mér síðast (fyrir fimm vikum) voru eðlilegar og ég er í blóðflokki O+ svo að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af rhesusmisræmi. Eins og síðast þá var blóðþrýstingurinn minn 100/70 og engin óeðlilegur sykur eða prótín í þvagi. Ég hafði líka bætt hæfilega á mig og er orðin 61kg, búin að þyngjast um 5 kg frá því fyrir meðgöngu. Ég er um það bil að ná Palla í þyngd!
Sónardagsetning og blæðingadagsetning pössuðu fullkomlega saman, svo að settur dagur er 13. október.
Næsta heimsókn til ljósmóður er svo eftir 4 vikur, föstudaginn 15. júní.
Ég lofa svo að þessi síða er ekki að breytast í barnasíðu :-)
-
9 svör
- Lítill laumufarþegi - 14 Maí 2007
-
Það eru stórar fréttir hérna frá Pittsburgh. Eins og margir útvaldir og eflaust fleiri hafa frétt þá er von á litlum hnoðra í heiminn í Pittsburgh um miðjan október - mikil gleði :-)
Allt hefur gengið rosalega vel og í síðustu skoðun, sem var fyrir fimm vikum, var hnoðrinn bara sprækur og sló litla hjartanu sínu 150 sinnum á mínútu. Næsta skoðun hjá ljósmóður og sónar er á miðvikudaginn í þessari viku. Ég hlakka til! Og vonandi fáum við að vita að allar rannsóknirnar sem gerðar voru síðast hafi komið eðlilega út. Reyndar væri hringt og maður látinn vita ef svo væri ekki en samt alltaf betra að heyra það í eigin persónu.
Ég er alveg rosalega nett enn þá svo engin bumbumynd hefur verið tekin. Fólk sem ekki þekkir mig vel tekur ekki eftir neinu. Ég er samt búin að þyngjast um 5 kíló, sem hafa öll farið framan á mig enda kemst ég vel í öll fötin mín en get ekki hneppt efstu tölunni á gallabuxunum mínum. Ég er búin að splæsa á mig nokkrum óléttutoppum og -bolum af því að allir mínir bolir eru orðin of stuttir.
Ég er í mömmuleikfimi tvisvar í viku. Það er mjög skemmtilegt og erobikkið er svo hægt að ég næ bara öllum sporunum og er satt að segja ekki klunnalegust (enn sem komið er)! Námskeiðin eru fjórar vikur og núna vita 17 af 20 stelpum kynið og 15 af þessum 17 erum með strák og bara 2 með stelpu - frekar fyndið. Ég er ein af þeim sem ekki veit, a.m.k. ekki enn þá.
-
7 svör
- Loftkæling - 11 Maí 2007
-
Við létum setja nýju loftkælinguna okkar upp í gær og þvílíkur draumur. Svaf eins og steinn í alla nótt og vaknaði ekkert til að svala þorsta.
Fór í kotkteil-stelpu partý til Ginu í gærkvöldi og á laugardaginn eftir viku fer ég í gæsapartýið hennar. Þannig að það er nóg að gera!
Í síðustu viku var skrifstofunni minni lokað og hún tekin í gegn. Hún er orðin rosa fín, nýmáluð og ný teppi - já teppi, Kanar elska teppi! Þessu átti reyndar að vera lokið á mánudaginn og var í raun lokið en það hefur gengið eitthvað hægt að setja boxin (hvað er cubicles á íslensku) og skrifborðin á sinn stað og setja upp nettenginguna.
-
5 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
