Misserið búið og hugsanlegt verkefni - 26 Apr 2007

Kláraði síðasta prófið í dag. Gekk bara vel að ég held. Vildi samt helst vera í sporum Söruh sem var að taka síðast kúrsinn sem hún þarf til að fylla upp í einingar. Núna getur hún tekið kúrsa bara ef hana langar og jafnvel bara sleppt prófum.

Síðan er ég kannski komin með nýtt verkefni. Þetta sem ég er búin að vera að skoða virðist ekki ætla að ganga upp og en þó það gæti gert það þá er þetta verkefni bara miklu meira spennandi. Þannig að ég ætla að sökkva mér í það á næstunni og athuga hvort það getur ekki endað í doktorsverkefni, eða réttara sagt flokkast sem fræðilega skyldan af doktorsverkefninu mínu. En ég er búin með nóg fyrir hagnýta hlutann, þó það muni samt bætast meira við þar á þessu ári enda erum við að bíða eftir nýjum rosalega fínum gögnum. Þau koma væntanlega á næstu 6 mánuðum. Það er svolítið skrýtið að hugsa til þess að ef ég væri í mannerfðafræði og ekki á statgen línunni heldur bara venjulegri mannaerfðfræði þá væri ég líklegast komin með gráðuna. Ekki það að það er miklu auðveldara að fá vinnu/postdoc ef maður hefur líka góðan tölfræðigrunn. Það er til dæmis einn nemandi hjá leiðbeinandanum mínum sem er að útskrifast núna úr statgen línunni í mannerfðafræðinni (en ekki statgen línunni í tölfræðinni eins og ég er í) og hún fékk flott tilboð bæði frá University of Washington, Seattle, sem er rosa góður og mig hefur alltaf langað að fara þangað, og frá Berkley.

Jæja, ég hætti ekki að minnast á heimsókn mömmu og pabba. Núna eru þau bara í loftinu á leið til Baltimore. Þau koma svo til okkar á hádegi á morgun. Á laugardaginn ætlum við til Grove City í búðir (pabba og Palla til mikillar gleði) og á þriðjudaginn ætlum við að fara alla leið til Kanada og kíkja á Niagara falls. Við munum gista eina nótt og baka leiðinni munum við líklega stoppa í Buffalo og gerast lummó túristar og fá okkur Buffalo-vængi á upprunalega staðnum.

Jóhanna Jóhanna

5 svör

  1. Spennandi dagar framundan hjá ykkur ;)
    Síðan hjá ykkur er eitthvað skrýtin, þ.e.a.s. ég var með ykkur í bookmarks en allt í einu núna virkar ekki sá linkur maður fer inn á woody allen síðu!!!!! það var samt nóg að fjarlægja www framan af og þá komst maður á síðuna ykkar. :D
    Kveðja Helga Dóra

    Sagði Helga Dóra — 27 Apr 2007 @ 4:48

  2. Það ætti að vera nóg að gera bara refresh á www. Það var eitthvað stillingaratriði þar sem síðan er geymd þannig að önnur síða sem er geymd á sama stað kom upp. Palli er búinn að laga þetta.

    Sagði Jóhanna — 27 Apr 2007 @ 10:28

  3. Til hamingju með próflokin! Njóttu nú daganna með foreldrunum og leyfðu þeim að dekra við þig :)

    Sagði Arndís — 27 Apr 2007 @ 5:57

  4. Er í heimsókn á Brúnastöðum í íslensku lambalæri. Skemmtið ykkur vel. Kveðja amma Helga

    Sagði Amma Helga — 28 Apr 2007 @ 2:43

  5. Mmm, íslenskt lambalæri. Við Palli njótum þess að látu þau dekra við okkur. Núna eru þau á Waterfront.

    Sagði Jóhanna — 30 Apr 2007 @ 2:23

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527