Helgin og strembin vika framundan - 22 Apr 2007

Án Palla helgin var heldur tíðindalítil. Planið var að vinna helling en ég náði bara að gera einn af þremur hlutum sem átti að gera. Fyrir utan þessa þrjá hluti var svo að læra undir próf. Ég er ekki byrjuð á því og klukkan orðin 10 að kvöldi. Þetta var nú ekki bara leti í mér heldur fékk ég mitt versta höfuðverkjakast í marga mánuði og ekkert hægt að gera annað en að reyna sofa það af sér og það tók 28 tíma frá tvö í gærdag til sex í dag og þá var ég ekki orðin góð bara svona lala. Ég vaknaði að vísu til að fá mér að borða.

Palli er núna á leiðinni til Chigaco þar sem þeir skipta yfir í vél til Pittsburgh. Það verður gott að fá hann heim. Síðan held ég að hann sé kominn í smá ráðstefnupásu, a.m.k. fram í ágúst. Mér finnst það fínt, svo leiðinlegt að vera svona ein.

Næsta vika verður strembin en getur nú samt ekki endað annað en vel þar sem mamma og pabbi leggja í hann til okkar á fimmtudaginn og verða kominn á hádegi á föstudaginn.

Síðan þarf ég að rýma skrifstofuna mína í skólanum. Það er nefnilega verið að fara að taka hana í gegn. Hún verður þá vonandi voða fín en samt pirrandi að þurfa að rýma allt í miðjum prófum.

Jæja, best að kíkja aðeins á efnið fyrir próf. Síðan ætla ég bara að vakna í fyrramálið og klára að læra. Þetta er nefnilega svona óþolandi próf sem er lokuð bók en samt má skrifa eina blaðsíðu af nótum. Prófið er ekki fyrr en 2.30, þarf að vísu að mæta á fund klukkan 1 en get þó lært (skrifaði nótur) þangað til - verð bara að komast fram úr rúminu hausverkjalaus í fyrramálið.

Jóhanna Jóhanna

4 svör

  1. gangi þér vel og heppin að fá gömlu í heimsókn ;)

    Sagði Gréta — 23 Apr 2007 @ 9:04

  2. GANGI ÞÉR VEL ELSKU STELPAN MÍN.
    HLÖKKUM ORÐIÐ ANSI MIKIÐ TIL AÐ KOMA TIL YKKAR. kNÚS OG KOSS. MAMMA.

    Sagði tengdó — 23 Apr 2007 @ 10:26

  3. gangi þér vel og vonandi batnaru í höfðinu

    Sagði Helga Dóra — 23 Apr 2007 @ 12:57

  4. takk fyrir allar, þetta gekk bara ágætlega, mun a.m.k. ná kúrsinum

    svo er það bara fyrirlestur á morgun, próf á fimmtudaginn og mamma og pabbi á föstudaginn :-)

    Sagði Jóhanna — 23 Apr 2007 @ 4:01

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527