Sprengjuhætta - 19 Apr 2007

Bílastæðið fyrir framan eina bygginguna var girt af og löggur út um allt. Forbes Ave var lokuð af að stórum hluta, blikkandi ljós út um allt og fréttaþyrlur í loftinu. Einhver asnaðist til að leggja bíl þar sem má ekki leggja, skilja hann eftir í klukkustund með furðulegan vökva í bílnum. Eitthvað leist mönnum ekki á blikuna og kölluðu á lögregluna sem ræsti út sprengjudeildina.

Við sáum einn klæðast svona sprengjubúningi og labba upp að bílnum og pota í hann eða eitthvað. Alveg eins og í CSI:Miami, nema hvað að þetta tók miklu lengri tíma og ekkert gerðist. Ég hef grun um að þeir séu eitthvað að stytta þetta í sjónvarpinu, því það tók hann 10 mín að koma sér í búninginn.

Á morgun verður svo haldið til stórborgarinnar Lincoln í Nebraska, en þar ku víst landið vera flatt eins og pönnukaka. Hver veit nema ég taki myndir.

Palli Palli

3 svör

  1. hehehe :D

    Sagði Helga Dóra — 19 Apr 2007 @ 4:12

  2. Góða ferð Palli minn og gangi þér vel. Hlakka til að sjá myndirnar.
    Kveðja Tengdó..

    Sagði tengdó — 20 Apr 2007 @ 5:24

  3. já fólk er líka á tánum hérna í Boston út af VT, að vera námsmaður í USA er orðið álíka hættulegt og að vera rappari

    Sagði baldur — 21 Apr 2007 @ 1:17

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527