Loksins góð spá - 18 Apr 2007

Síðan ég skrifaði síðast hefur verið leiðindaveður. Núna er loksins spáð yfir 10C og frá föstudegi til sunnudags verður 20C og glampandi sól. Verst að Palli er að fara á ráðstefnu í Nebraska um helgina. Þannig við getum ekkert skellt okkur út fyrir borgina í gönguferð og afslappelsi. Það þýðir bara að ég verð ein að fá mér ís og crepes um helgina.

Mamma og pabbi eru á leiðinni til okkur um þar næstu helgi, bara ein og hálf vika í komu þeirra. O, hvað ég hlakka til.

Er að skrifa ´letter to the editor´núna og að lesa yfir grein. Það er þá fjórða greinin sem ég er yfirlesari (e. reviewer) fyrir. Síðan eru misserislok á næsta leiti, tvö próf og eitt lokaverkefni.

Jóhanna Jóhanna

3 svör

  1. ég verð líka ein heima um helgina, því Gummi er að fara að hjóla í Hollandi. Ég held ég fá mér líka ís :)

    Sagði Gréta — 18 Apr 2007 @ 1:04

  2. Gott að fá sér ís í góðu veðri.
    Hlökkum mikið til að koma til ykkar. Knús og koss. Mamma…

    Sagði Pabbi — 19 Apr 2007 @ 6:26

  3. Vona að það verði þá gott veður hjá okkur báðum. Svo fær mútta að smakka þennan ís þegar þau koma. Rosa góð ísbúð, sko!

    Sagði Jóhanna — 19 Apr 2007 @ 11:37

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527