- Misserið búið og hugsanlegt verkefni - 26 Apr 2007
-
Kláraði síðasta prófið í dag. Gekk bara vel að ég held. Vildi samt helst vera í sporum Söruh sem var að taka síðast kúrsinn sem hún þarf til að fylla upp í einingar. Núna getur hún tekið kúrsa bara ef hana langar og jafnvel bara sleppt prófum.
Síðan er ég kannski komin með nýtt verkefni. Þetta sem ég er búin að vera að skoða virðist ekki ætla að ganga upp og en þó það gæti gert það þá er þetta verkefni bara miklu meira spennandi. Þannig að ég ætla að sökkva mér í það á næstunni og athuga hvort það getur ekki endað í doktorsverkefni, eða réttara sagt flokkast sem fræðilega skyldan af doktorsverkefninu mínu. En ég er búin með nóg fyrir hagnýta hlutann, þó það muni samt bætast meira við þar á þessu ári enda erum við að bíða eftir nýjum rosalega fínum gögnum. Þau koma væntanlega á næstu 6 mánuðum. Það er svolítið skrýtið að hugsa til þess að ef ég væri í mannerfðafræði og ekki á statgen línunni heldur bara venjulegri mannaerfðfræði þá væri ég líklegast komin með gráðuna. Ekki það að það er miklu auðveldara að fá vinnu/postdoc ef maður hefur líka góðan tölfræðigrunn. Það er til dæmis einn nemandi hjá leiðbeinandanum mínum sem er að útskrifast núna úr statgen línunni í mannerfðafræðinni (en ekki statgen línunni í tölfræðinni eins og ég er í) og hún fékk flott tilboð bæði frá University of Washington, Seattle, sem er rosa góður og mig hefur alltaf langað að fara þangað, og frá Berkley.
Jæja, ég hætti ekki að minnast á heimsókn mömmu og pabba. Núna eru þau bara í loftinu á leið til Baltimore. Þau koma svo til okkar á hádegi á morgun. Á laugardaginn ætlum við til Grove City í búðir (pabba og Palla til mikillar gleði) og á þriðjudaginn ætlum við að fara alla leið til Kanada og kíkja á Niagara falls. Við munum gista eina nótt og baka leiðinni munum við líklega stoppa í Buffalo og gerast lummó túristar og fá okkur Buffalo-vængi á upprunalega staðnum.
-
5 svör
Apríl, 2007
- Helgin og strembin vika framundan - 22 Apr 2007
-
Án Palla helgin var heldur tíðindalítil. Planið var að vinna helling en ég náði bara að gera einn af þremur hlutum sem átti að gera. Fyrir utan þessa þrjá hluti var svo að læra undir próf. Ég er ekki byrjuð á því og klukkan orðin 10 að kvöldi. Þetta var nú ekki bara leti í mér heldur fékk ég mitt versta höfuðverkjakast í marga mánuði og ekkert hægt að gera annað en að reyna sofa það af sér og það tók 28 tíma frá tvö í gærdag til sex í dag og þá var ég ekki orðin góð bara svona lala. Ég vaknaði að vísu til að fá mér að borða.
Palli er núna á leiðinni til Chigaco þar sem þeir skipta yfir í vél til Pittsburgh. Það verður gott að fá hann heim. Síðan held ég að hann sé kominn í smá ráðstefnupásu, a.m.k. fram í ágúst. Mér finnst það fínt, svo leiðinlegt að vera svona ein.
Næsta vika verður strembin en getur nú samt ekki endað annað en vel þar sem mamma og pabbi leggja í hann til okkar á fimmtudaginn og verða kominn á hádegi á föstudaginn.
Síðan þarf ég að rýma skrifstofuna mína í skólanum. Það er nefnilega verið að fara að taka hana í gegn. Hún verður þá vonandi voða fín en samt pirrandi að þurfa að rýma allt í miðjum prófum.
Jæja, best að kíkja aðeins á efnið fyrir próf. Síðan ætla ég bara að vakna í fyrramálið og klára að læra. Þetta er nefnilega svona óþolandi próf sem er lokuð bók en samt má skrifa eina blaðsíðu af nótum. Prófið er ekki fyrr en 2.30, þarf að vísu að mæta á fund klukkan 1 en get þó lært (skrifaði nótur) þangað til - verð bara að komast fram úr rúminu hausverkjalaus í fyrramálið.
-
4 svör
- Sprengjuhætta - 19 Apr 2007
-
Bílastæðið fyrir framan eina bygginguna var girt af og löggur út um allt. Forbes Ave var lokuð af að stórum hluta, blikkandi ljós út um allt og fréttaþyrlur í loftinu. Einhver asnaðist til að leggja bíl þar sem má ekki leggja, skilja hann eftir í klukkustund með furðulegan vökva í bílnum. Eitthvað leist mönnum ekki á blikuna og kölluðu á lögregluna sem ræsti út sprengjudeildina.
Við sáum einn klæðast svona sprengjubúningi og labba upp að bílnum og pota í hann eða eitthvað. Alveg eins og í CSI:Miami, nema hvað að þetta tók miklu lengri tíma og ekkert gerðist. Ég hef grun um að þeir séu eitthvað að stytta þetta í sjónvarpinu, því það tók hann 10 mín að koma sér í búninginn.
Á morgun verður svo haldið til stórborgarinnar Lincoln í Nebraska, en þar ku víst landið vera flatt eins og pönnukaka. Hver veit nema ég taki myndir.
-
3 svör
- Loksins góð spá - 18 Apr 2007
-
Síðan ég skrifaði síðast hefur verið leiðindaveður. Núna er loksins spáð yfir 10C og frá föstudegi til sunnudags verður 20C og glampandi sól. Verst að Palli er að fara á ráðstefnu í Nebraska um helgina. Þannig við getum ekkert skellt okkur út fyrir borgina í gönguferð og afslappelsi. Það þýðir bara að ég verð ein að fá mér ís og crepes um helgina.
Mamma og pabbi eru á leiðinni til okkur um þar næstu helgi, bara ein og hálf vika í komu þeirra. O, hvað ég hlakka til.
Er að skrifa ´letter to the editor´núna og að lesa yfir grein. Það er þá fjórða greinin sem ég er yfirlesari (e. reviewer) fyrir. Síðan eru misserislok á næsta leiti, tvö próf og eitt lokaverkefni.
-
3 svör
- Pappírsfrestur - 07 Apr 2007
-
Ég og Prasad vorum að ljúka við pappírinn okkar og eftir mikið snurfus, sendum við hann inn. Reyndar hef ég ennþá 15 mín til að lagfæra eitthvað ef við höfum klúðrað einhverju. Það skiptir sosum engu máli því enginn mun lesa hann til enda, sérstaklega ekki 13 blaðsíðna viðauka með mjög þurrum sönnunum á hinum ýmsustu trígónómetrísku ídentítetum. Einhvern veginn hélt ég að ég væri búinn með það eftir MR.
En nú tekur matur við og jafnvel svefn ef vel lætur.
-
5 svör
- Írsk-indversk blanda - 06 Apr 2007
-
Í gærkvöldi skelltum við okkur með Ginu og Steve út að borða. Fórum meira að segja alla leið á South Side, sem er mjög fallegt gamalt hverfi í borginni. Borgin er að reyna að halda því við í gamla stílnum og mikið af verslunum í dýrari kantinum eru á svæðinu. Við fórum á fyndin en mjög góðan stað sem var reyklaus bar sem seldi úrval af írskum bjór ásamt indverksum og indversk-amerískum ´fusion´mat sem var mjög góður.
-
Eitt svar
- Gott veður - 02 Apr 2007
-
O, það er svo gaman þegar veðrið er svona gott. Það er reyndar spáð einhverju skítaveðri í fimmtudaginn, snjókoma og kuldi, en ég hef enga trú að það muni standast.
Helgin leið tíðindalaust. Við fórum í göngutúr upp í Squirell Hill og fórum á Aladins enda langt síðan við fórum þangað síðast.
Það er ekkert páskafrí hér þannig að það er best að fara að klára verkefni sem á að skila á eftir.
-
Eitt svar
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
