- Komin í skólann - 19 Mar 2007
-
Ég er mætt í skólann. Núna þarf ég aldeilis að vinna upp vinnutap og komast aftur í gang. En þar sem það var vorfrí hjá mér þá missti ég ekki mikið af í kúrsunum.
Á eftir fer ég til kvensjúkdómalæknsins sem var kallað á í aðgerðinni og á fimmtudaginn hitti ég svo skurðlækninn. Það sem var að þjaka mig reyndist vera blaðra á hægri eggjastokknum. Hún var á stærð við greip ávöxt með rúmum 1/2 lítra af vökva. Læknarnir voru hræddir um að hún hefði snúið upp á eggjastokkinn, en það getur stöðvað blóðflæðið þannig að eggjastokkurinn eyðileggist. En sem betur fer virtist það ekki hafa gerst. Blaðran var svo stór að hún lá yfir botlanganum svo að ekki var vitað fyrirfram hvort ég væri með botlangabólgu eða ekki. Hann var í fínu lagi en var samt tekinn svona fyrst verið var að opna mig. Mikið er ég þakklát fyrir sjúkratrygginguna mína núna. Það var líka vel hugsað um mig á spítalanum og allt var tipp topp. Það má segja að þjónustan sé aðeins betri á bráðamóttökunni hér en heima. Þegar við Palli komum, tók bara vörður bílinn fyrir okkur og lagði honum þannig við gátum stokkið beint inn á spítalann og þar þurftum við ekkert að bíða, það beið bara hjólastóll eftir mér og mér var rúllað beint inn á bráðamóttökuna.
Birna tengdamamma var hjá okkur um helgina. Alveg æðislegt að fá hana í heimssókn. Hún var reyndar veðurteppt í Baltimore í sólarhring og kom ekki fyrr en á laugardeginum. Alveg ótrúlegt hvað allt lamast þegar snjóar smá. Við fórum á suður-indverskan stað og í leikhús á laugardeginum. Við röltum líka á Walnut st. Á sunnudeginum fórum við stutta ferð í mollið og Palli bakaði svo pizzu og ég gerði salat fyrir okkur um kvöldið. Ég steinrotaðist svo klukkan 10 í gærkvöldi, orkan ekki alveg komin aftur ;-)
Palli hélt svo af stað á ráðstefnu í Atlanta eldsnemma í morgun. Birna hélt aftur til Baltimore. Ég verð ein fram á föstudag.
-
Jóhanna
4 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Gott að þú ert að hressast :) Þú reynir bara að dekra við þig á meðan…
Sagði Gréta — 20 Mar 2007 @ 3:47
Tökum undir með Grétu. Skiljum ekki hvernig heilt greip gat falið sig undir þessum granna maga!
Sagði Sigrún og Erling — 20 Mar 2007 @ 2:53
Takk, takk.
Hehe, ég skil ekki heldur hvernig þetta komst þarna fyrir og ég var bara örlítið þrútin um magann.
Kvensjúkdómalækninum leist bara vel á mig. Það var líka fyndið að hann hafði verið með mér í tímum þegar ég var á fyrsta ári. Þá var hann að taka master of public health en það er mjög algengt að læknar hér geri það.
Sagði Jóhanna — 20 Mar 2007 @ 4:15
Takk fyrir mig elsku J’ohanna thad var yndislegt ad koma til ykkar og eg gleymdi ollum ferdahremmingum um leid og eg var komin. Er nuna i Charlottesville a namskeidinu i Best Practisese med 20 adstodarskolastjorum ad heiman - ekki slaemt. Er samt farin ad hlakka til ad fara heim. Bid ad heilsa Palla.
Sagði Birna-mamma — 23 Mar 2007 @ 7:05