Pönnsur - 03 Mar 2007

Ég gerði íslenskar pönnsur í morgun. Eina íslenska hráefnið var að vísu íslenskt smjör. Ég er alltaf að verða betri og betri í þessu. Kannski endar þetta þannig að ég baki á nokkrum pönnum í einu.

Í gær fengum við okkur svo franskar pönnsur í hádeginu og skelltum okkur svo á Aladins um kvöldið. Eins og oft gerist spyr fólk á næstu borðum okkur hvaða tungumál við erum eiginlega að tala. Á Aladins hittum við í fyrsta skipti mann sem vissi að við vorum ekki að tala þýsku heldur eitthvert skandinavísku málanna.

Annars er ég komin í vorfrí, sem reyndar mun einkennast af vinnu en það er ágætt að sleppa við að mæta í tíma. Líka gott að miðsvetrarprófin voru fyrir vorfríið og gekk bara vel.

Gréta systir skreppur heim til Íslands í næstu viku. Mikið öfunda ég hana að geta hoppað svona upp í flugvél og farið heim fyrir lítinn pening. Mig langar líka rosalega að knúsa mömmu og pabba.

Jóhanna Jóhanna

2 svör

  1. ég skal knúsa þau fyrir þig :)

    Sagði Gréta — 04 Mar 2007 @ 6:23

  2. Það styttist nú í knúsið hjá okkur.
    við getum orðið sagt í NÆSTA mánuði.
    Þú átt örugglega eftir að verða eins góð í pönnukökubaxtri eins og amma Jóhanna. Það verður ansi ljút að fá Grétu til sín nokkra daga. Okkur hlakkar mikið til. Koss og knús, mamma

    Sagði mamma. — 04 Mar 2007 @ 10:59

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527