Mars, 2007

Reyktur lax og nammi - 23 Mar 2007

Birna kom með íslenskan reyktan lax til okkar og í gærkvöldi borðaði ég ristað brauð með laxi og eggjum og líka í hádegismat áðan. Mmm. Birna kom líka með íslenskt nammi og prins póló og hvoru tveggja hefur átt greiða leið inn fyrir mínar varir. Svo fengum við líka páskaegg. Ég hugsa að við látum mömmu og pabba ekki koma með nein sætindi enda meira nóg til á heimilinu núna.

Ég fór til skurðlæknisins í gær í tjekk og allt leit vel út, sárin gróa vel. Hann sagði samt að það væri enn smá sýkingarhætta svo að ég þarf að fylgjast vel með sárunum og á að koma strax til hans ef þau verða rauð, byrja að bólgna eða verða aum.

Palli kemur heim á eftir. O hvað ég hlakka til :-)


2 svör
Heldur einmannalegt - 21 Mar 2007

Það er nú heldur einmannalegt hérna hjá mér á meðan Palli er í Atlanta. Til dæmis borðaði ég ein spíant crepes áðan og fór ein í göngutúr til að reyna að fríska upp á mig. Ég held að vorið sé barasta komið. Það var 18 C í dag og spáir kringum 15 C næstu 10 daga. Það er alveg yndisleg vorlykt í loftinu og eftir vorhretið um helgina er loftið hreint og tært.


3 svör
Komin í skólann - 19 Mar 2007

Ég er mætt í skólann. Núna þarf ég aldeilis að vinna upp vinnutap og komast aftur í gang. En þar sem það var vorfrí hjá mér þá missti ég ekki mikið af í kúrsunum.

Á eftir fer ég til kvensjúkdómalæknsins sem var kallað á í aðgerðinni og á fimmtudaginn hitti ég svo skurðlækninn. Það sem var að þjaka mig reyndist vera blaðra á hægri eggjastokknum. Hún var á stærð við greip ávöxt með rúmum 1/2 lítra af vökva. Læknarnir voru hræddir um að hún hefði snúið upp á eggjastokkinn, en það getur stöðvað blóðflæðið þannig að eggjastokkurinn eyðileggist. En sem betur fer virtist það ekki hafa gerst. Blaðran var svo stór að hún lá yfir botlanganum svo að ekki var vitað fyrirfram hvort ég væri með botlangabólgu eða ekki. Hann var í fínu lagi en var samt tekinn svona fyrst verið var að opna mig. Mikið er ég þakklát fyrir sjúkratrygginguna mína núna. Það var líka vel hugsað um mig á spítalanum og allt var tipp topp. Það má segja að þjónustan sé aðeins betri á bráðamóttökunni hér en heima. Þegar við Palli komum, tók bara vörður bílinn fyrir okkur og lagði honum þannig við gátum stokkið beint inn á spítalann og þar þurftum við ekkert að bíða, það beið bara hjólastóll eftir mér og mér var rúllað beint inn á bráðamóttökuna.

Birna tengdamamma var hjá okkur um helgina. Alveg æðislegt að fá hana í heimssókn. Hún var reyndar veðurteppt í Baltimore í sólarhring og kom ekki fyrr en á laugardeginum. Alveg ótrúlegt hvað allt lamast þegar snjóar smá. Við fórum á suður-indverskan stað og í leikhús á laugardeginum. Við röltum líka á Walnut st. Á sunnudeginum fórum við stutta ferð í mollið og Palli bakaði svo pizzu og ég gerði salat fyrir okkur um kvöldið. Ég steinrotaðist svo klukkan 10 í gærkvöldi, orkan ekki alveg komin aftur ;-)

Palli hélt svo af stað á ráðstefnu í Atlanta eldsnemma í morgun. Birna hélt aftur til Baltimore. Ég verð ein fram á föstudag.


4 svör
5 ár og spítalavist - 12 Mar 2007

Já. Það hefur ýmislegt gengið á að undanförnu hjá okkur. Ég lenti á spítala í síðustu viku og smá uppskurði. Ég var í  tvær nætur og fékk að fara heim á föstudeginum síðasta en þá voru líka 5 ár síðan við Palli hittumst :-) Palli stjanar við mig eins og alltaf, hann er svo góður. Er öll að hressast. Núna er ég aðalega orkulaus og þreytt svo ekki gera ráð fyrir miklum skrifum næstu daga. Nenni ekki að fara út í nein smáatriði en það er allt í fínu lagi með mig.


4 svör
Pönnsur - 03 Mar 2007

Ég gerði íslenskar pönnsur í morgun. Eina íslenska hráefnið var að vísu íslenskt smjör. Ég er alltaf að verða betri og betri í þessu. Kannski endar þetta þannig að ég baki á nokkrum pönnum í einu.

Í gær fengum við okkur svo franskar pönnsur í hádeginu og skelltum okkur svo á Aladins um kvöldið. Eins og oft gerist spyr fólk á næstu borðum okkur hvaða tungumál við erum eiginlega að tala. Á Aladins hittum við í fyrsta skipti mann sem vissi að við vorum ekki að tala þýsku heldur eitthvert skandinavísku málanna.

Annars er ég komin í vorfrí, sem reyndar mun einkennast af vinnu en það er ágætt að sleppa við að mæta í tíma. Líka gott að miðsvetrarprófin voru fyrir vorfríið og gekk bara vel.

Gréta systir skreppur heim til Íslands í næstu viku. Mikið öfunda ég hana að geta hoppað svona upp í flugvél og farið heim fyrir lítinn pening. Mig langar líka rosalega að knúsa mömmu og pabba.


2 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527