Google - 24 Feb 2007

Var að sækja um sumarstarf hjá Google. Ef ég fengi starfið þá væri það afar þægilegt, því ég gæti labbað í vinnuna. Stóra Géið opnaði nebblega skrifstofu í skólanum og þeir eru víst að stækka við sig. Mig grunar að samkeppnin sé gríðarlega hörð, Google fær umsóknir á 25 sekúndna fresti! Síðustu tvær vikur fóru í að skrifa CVið, safna meðmælum, skanna inn einkunnaspjöld og skrifa cover letter.

Ef allt fer að óskum fer ég í símaviðtal sem á að taka ca. klukkutíma og ef það gengur vel tekur við allsherjar viðtal. Þá fer maður í um fimm viðtöl, hvert og eitt klukkutími, þar sem maður er spurður spjörunum úr og þarf að geta svarað öllu milli himins og jarðar og skrifað kóða á staðnum og ég veit ekki hvað og hvað.

Mogginn segir í dag frá að það þurfi 100 doktora á ári og að Ísland eigi enn langt í land. Þeir gleyma að segja frá því hve margir útskrifist á ári nú þegar. Ef við tökum kalt mat á þetta þá er líka ljóst að dreifingin þarf að halla meira í áttina að vísinda- og tæknigreinum.

Palli Palli

3 svör

  1. Hei, geturðu þá gúgglað fyrir mann? :)

    Sagði Gunnarinn — 25 Feb 2007 @ 6:22

  2. Það verður spennandi að fylgjast með hvernig gengur - hvort þeir hjá GOOGLE átta sig á þessum frábæra kosti sem þeim býðst :)

    Sagði Birna /mamma — 25 Feb 2007 @ 8:31

  3. Tek undir með mömmu þinni Palli minn.
    Kveðja. Tengdamamma…

    Sagði mamma. — 25 Feb 2007 @ 12:57

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527