- Farið að vora - 20 Feb 2007
-
Það er farið að vora hjá okkur. Hitinn heilar 9C í dag. Æðislegt. Frostið hefur verið svo mikið undanfarið og við ekki farið mikið á bílnum að það tók 25 mín að brjóta ísinn af bílnum um helgina.
Í gær var okkur boðið í afganga til Davids og Tessu. Hann er með Palla í stærðfræði og hún er prófessor í Pitt. Það voru víst umsækjendur í heimsókn í deildina hennar og öllum var boðið í mat og við græddum afganga í gær. Þægilegt, svona á virkum degi, að þurfa ekkert að spá í mat.
Í kuldanum um daginn langaði mig svo svakalega í ís yfir sjónvarpinu. Við gerðum þau mistök að fara í ísbúðina á Walnut en auðvitað var hún lokuð. Ég veit bara um tvær ísbúðir sem loka ekki á veturna.
-
Jóhanna
Eitt svar
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Ísbúðin niðri í miðbæ er líka lokuð allan veturinn hér og líka eina útisundlaugin
Sagði Gréta — 21 Feb 2007 @ 8:15