- Google - 24 Feb 2007
-
Var að sækja um sumarstarf hjá Google. Ef ég fengi starfið þá væri það afar þægilegt, því ég gæti labbað í vinnuna. Stóra Géið opnaði nebblega skrifstofu í skólanum og þeir eru víst að stækka við sig. Mig grunar að samkeppnin sé gríðarlega hörð, Google fær umsóknir á 25 sekúndna fresti! Síðustu tvær vikur fóru í að skrifa CVið, safna meðmælum, skanna inn einkunnaspjöld og skrifa cover letter.
Ef allt fer að óskum fer ég í símaviðtal sem á að taka ca. klukkutíma og ef það gengur vel tekur við allsherjar viðtal. Þá fer maður í um fimm viðtöl, hvert og eitt klukkutími, þar sem maður er spurður spjörunum úr og þarf að geta svarað öllu milli himins og jarðar og skrifað kóða á staðnum og ég veit ekki hvað og hvað.
Mogginn segir í dag frá að það þurfi 100 doktora á ári og að Ísland eigi enn langt í land. Þeir gleyma að segja frá því hve margir útskrifist á ári nú þegar. Ef við tökum kalt mat á þetta þá er líka ljóst að dreifingin þarf að halla meira í áttina að vísinda- og tæknigreinum.
-
3 svör
Febrúar, 2007
- Súkkulaði í póstinum - 22 Feb 2007
-
Mmm. Fékk sæta sendingu frá Grétu í morgun, Daim Marabou súkkulaði. Takk syss, súkkulaðið er æðislega gott og gladdi mig mikið. Knús.
-
4 svör
- Gúbbi á annarri hæð - 21 Feb 2007
-
Í gærkvöldi fundum við allt í einu svakalega brunalykt. Við skyldum ekkert í að brunabjallan fór ekki gang enda var stigagangurinn fullur af reyk. Einhver gúbbi á annarri hæð hafði skilið pottinn eftir á gasinu.
-
Engin svör
- Farið að vora - 20 Feb 2007
-
Það er farið að vora hjá okkur. Hitinn heilar 9C í dag. Æðislegt. Frostið hefur verið svo mikið undanfarið og við ekki farið mikið á bílnum að það tók 25 mín að brjóta ísinn af bílnum um helgina.
Í gær var okkur boðið í afganga til Davids og Tessu. Hann er með Palla í stærðfræði og hún er prófessor í Pitt. Það voru víst umsækjendur í heimsókn í deildina hennar og öllum var boðið í mat og við græddum afganga í gær. Þægilegt, svona á virkum degi, að þurfa ekkert að spá í mat.
Í kuldanum um daginn langaði mig svo svakalega í ís yfir sjónvarpinu. Við gerðum þau mistök að fara í ísbúðina á Walnut en auðvitað var hún lokuð. Ég veit bara um tvær ísbúðir sem loka ekki á veturna.
-
Eitt svar
- Upp fyrir frostmark - 12 Feb 2007
-
Hitinn fór upp fyrir frostmark í fyrsta skipti í ansi langan tíma. Að vísu náði hann aðeins 1C en það var samt vorlykt í loftinu þegar ég labbaði í skólann. Svæðisfréttirnar hafa verið uppfullar of “neyðarástandinu” í borginni. Þannig er nefnilega að þessi langi frostakafli hefur gert það að verkum að þrýstingur á kalda vatninu er mjög lágur og mikið um að leiðslur hafi sprungið og vatnið þar af leiðandi farið af. Það sem verra er er hins vegar yfirvofandi saltskortur (götusalt) en þar sem allar árnar þrjár sem renna gegnum borgina eru ísi lagðar hefur ekki verið hægt að flytja meira salt hingað. Eitt er víst ég hætti mér ekki út á þjóðvegina ef þeir eru ósaltaðir. Fólk kann bara ekki að aka í smá hálku.
-
Eitt svar
- Göngutúr - 11 Feb 2007
-
Skelltum okkur í göngutúr í Schenley Park áðan. Þar sáum við eitt stykki hauk með íkorna í klónum sem tyllti sér á grein beint fyrir framan okkur. Ég reyndi að ná nokkrum myndum af honum en ég var með nýju 50mm linsuna á sem er ekki beinlínis gerð fyrir fuglaskoðun. Á endanum missti hann íkornan, ef íkorninn var ekki dauður nú þegar þá var 15 metra fall ekki að hjálpa mikið til. Mér sýndist haukurinn vilja bíða þar til allir væru farnir til að hirða bráðina. Ég náði samt einni góðri mynd þar sem hann bíður óþreyjufullur á greininni.

Haukurinn
-
Eitt svar
- Kalt - 04 Feb 2007
-
Það er alveg hrikalega kalt hjá okkur. Fer hæst í -12 gráður þessa dagana. Það þykir mjög merkilegt að hitinn skuli fara í eins stafa Fahrenheit (þ.e. 9F = -13C). Svona á þetta að vera fram í miðjan febrúar.
Núna er Super Bowl í gangi, Chicago Bears keppa við Indianapolis Colts. Okkar menn komust ekki langt í þetta sinn :-( Það er nú samt alveg nóg að upplifa þetta sigurbrjálæði einu sinni eins í fyrra.
Annars er allt í þessu fína hjá okkur. Það lítur út fyrir að það verði alveg nóg að gera hjá okkur báðum þetta misserið.
-
2 svör
- Til hamingju - 02 Feb 2007
-
Pabbi með daginn í dag.
Birna og Jón með daginn í dag.
Ragnhildur með daginn á morgun.
Sigrún með daginn á morgun.
Knús til Köben og heim ;-)
-
4 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
