Fastar skorður - 24 Jan 2007

Það er allt að komast í fastar skorður hjá okkur. Mér líst bara nokkuð vel á kúrsana sem ég er í núna. Palli er í einum kúrsi og situr í öðrum, þ.e.a.s. hann tekur ekki próf og mætir bara ef verið er að fjalla um áhugavert efni. Hann er að TA-a einn kúrs og þarf bara að kenna einu sinni í viku en þarf í staðinn að vera með tvo skrifstofutíma. Yfirleitt er hver TA með tvo hópa.

Núna erum við byrjuð að herma eftir Grétu og búa til vikumatseðil á sunnudögum. Þannig þurfum við bara að fara í búðina einu sinni í viku og þá eru minni líkur á að kaupa sætindi og annað óhollt. Sjáum svo til hvernig þetta á eftir að ganga ;-)

Við horfðum á “State of the Union” í gær - þá kemur þingið aftur saman og forsetinn heldur ræðu um ástandið í þjóðfélaginu í dag og hvað hann ætlar að gera á þessu ári. Það sem mér finnst skemmtilegast við þetta að venjulegu fólki er boðið að vera viðstatt og svo minnist forsetinn á þessa einstaklinga og hvað þeir hafa verið að gera merkilegt og gott fyrir Bandaríkin. Það var dálítið fyndið að í upphafi útsendingar töluðu fréttamennirnir um að þeir ætluðu að fylgjast vel með svipbrigðum þingmanna við ræðu forsetans og þá sérstaklega Hillary og Obama en þau voru bæði búin að æfa sig svo mikið að sýna engin svipbrigði að ekkert vandræðalegt náðist á filmu. Þeir náðu þó einum þingmanni þegar hann geyspaði!

Jóhanna Jóhanna

Eitt svar

  1. Sunnudagslistinn er góður. Mér gengur bara mjög vel að hætta að borða nammi ;) Fyndið að æfa sig í að sýna engin svipbrigði.

    Sagði Gréta — 25 Jan 2007 @ 6:25

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527