- Dekurdúkka - 30 Jan 2007
-
Ég er svo mikil dekurdúkka. Palli er að elda dýrindis austurlenskan kjúlla fyrir okkur.
-
Eitt svar
Janúar, 2007
- Sjónvarpskvöld - 29 Jan 2007
-
Fullt af góðum þáttum í sjónvarpinu í kvöld, bara margir á sama tíma á mismunandi stöðvum. Það er því gott að nbc og cbs eru byrjuð að setja þættina á netið eftir að hafa sýnt þá.
-
Engin svör
- Vei! - 28 Jan 2007
-
Birna tengdamamma kemur til okkar um miðjan mars og mamma og pabbi koma til okkar í lok apríl. Það er því nóg að hlakka til. Mikið er ég ánægð að fá þessar heimsóknir.
Við fórum á Aladins í gærkvöldi. Það er svo ótrúlega langt síðan síðast. Fyrst fengum við okkur kaffi í Barnes & Noble og skoðuðum bækur og blöð.
-
5 svör
- “Litlu” ómetanlegu staðirnir - 26 Jan 2007
-
Ég er ánægð með að umhverfisverndarsamtök hafi loksins áhuga á einhverju öðru en Kárahnjúkum. Vona að pólítíkusarnir finni þennan áhuga líka. Það er kominn tími til að Íslendingar átti sig á að náttúruvernd snýst ekki um að vera með eða á móti virkjun sem er svo gott sem búið að byggja. Það er svo miklu mikilvægara að eyða orkunni í að vernda staði sem eru enn óspilltir. Er viss um að þeir sem hafi komið í Teigsskóg eru sammála um að ekki eigi að leggja veg um skóginn enda einn af fáum náttúrulegum skógum á Íslandi.
-
Engin svör
- Fastar skorður - 24 Jan 2007
-
Það er allt að komast í fastar skorður hjá okkur. Mér líst bara nokkuð vel á kúrsana sem ég er í núna. Palli er í einum kúrsi og situr í öðrum, þ.e.a.s. hann tekur ekki próf og mætir bara ef verið er að fjalla um áhugavert efni. Hann er að TA-a einn kúrs og þarf bara að kenna einu sinni í viku en þarf í staðinn að vera með tvo skrifstofutíma. Yfirleitt er hver TA með tvo hópa.
Núna erum við byrjuð að herma eftir Grétu og búa til vikumatseðil á sunnudögum. Þannig þurfum við bara að fara í búðina einu sinni í viku og þá eru minni líkur á að kaupa sætindi og annað óhollt. Sjáum svo til hvernig þetta á eftir að ganga ;-)
Við horfðum á “State of the Union” í gær - þá kemur þingið aftur saman og forsetinn heldur ræðu um ástandið í þjóðfélaginu í dag og hvað hann ætlar að gera á þessu ári. Það sem mér finnst skemmtilegast við þetta að venjulegu fólki er boðið að vera viðstatt og svo minnist forsetinn á þessa einstaklinga og hvað þeir hafa verið að gera merkilegt og gott fyrir Bandaríkin. Það var dálítið fyndið að í upphafi útsendingar töluðu fréttamennirnir um að þeir ætluðu að fylgjast vel með svipbrigðum þingmanna við ræðu forsetans og þá sérstaklega Hillary og Obama en þau voru bæði búin að æfa sig svo mikið að sýna engin svipbrigði að ekkert vandræðalegt náðist á filmu. Þeir náðu þó einum þingmanni þegar hann geyspaði!
-
Eitt svar
- Aftur í hversdagsleikann - 12 Jan 2007
-
Við erum komin aftur til Pittsburgh og erum svona að vinna í því að komast aftur í gang. Ég er reyndar búin að vera með hausverk alla vikuna og eiginlega bara búin að sofa en hann virðist vera að láta undan.
Strax á þriðjudeginum skelltum við okkur á Walnut og keyptum afmælisgjöf (Takk mamma, pabbi, amma og Bryndís). Fengum okkur fínasta pottasett. Við fórum líka með bilaða brauðgrillið í búðina og ætluðum nú bara að kanna hvort hægt væri að laga það en þar sem búðin var hætt að selja þessa týpu fengum við bara nýtt og betra grill og þurftum bara að borga mismuninn. Tek fram að við vorum ekki með kvittun fyrir ónýta grillinu. Fengi maður einhvern tímann svona þjónustu á Íslandi?
Jólafríið heima var auðvitað alveg frábært. Við náðum að hitta fullt af fólki. Ég hitti Eydísi, Ragnhildi og Guðrúnu Yrsu, vinkonur mínar sem ég hef ekk séð síðan í brúðkaupinu okkar. Svo hittum við vinahópinn og nýjasta meðliminn í honum ;-) Við fórum í innflutningspartý til Hauks og Arndísar. Og síðast en ekki síst eyddum við tíma með fjölskyldunni, borðuðum góðan mat og héldum upp á afmælin okkar. Við fórum í sund, göngutúra og kíktum á Hól, fórum í smá fjallgöngu þar og unnum smá.
-
Engin svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
