Desember, 2006

Teljarinn horfinn - 15 Des 2006

Teljarinn horfinn enda minna en sólarhringur í brottför. Palli er að klára að fara yfir próf og ég er hérna heima að pakka og gera klárt, þrífa og þvo þvott og henda úr ískápnum.

Fyrirlesturinn gekk vel í dag og einstaklega vel ef ég ber mig saman við aðra í kúrsinum. Ég er búin að fá eina einkunn, A-, í Elements of Stochastic processes, en á eftir að fá tvær.

Búið er að smyrja bílinn og tjékka á öllu. Vonum að það standist að hann eigi ekki að bila á næstunni annars erum við í Triple A svona til öryggis ef bíllinn hrynur í sundur á I-76 eða I-70!

Ég á ekki von á að fært verði hér inn á meðan við erum á Íslandi :-) Sjáumst heima :-)


4 svör
Eitt eftir - 12 Des 2006

Núna á ég bara eftir að halda einn fyrirlestur. Í morgun skilaði ég ritgerð og hélt fyrirlestur í Bayes computation kúrsinum. Ég var orðin svolítið mikið þreytt þegar ég var að vinna í þessu í gærkvöldi en með hvatningu og hjálp frá Palla þá tókst að klambra þessu saman þrátt fyrir heila á innan við 30% afli!

Var dálítið rugluð í dag eftir að hafa klárað fyrirlesturinn. Ég fór á fund með leiðbeinandanum mínum og svo í Radioshack. Í Radioshack ætlaði ég að kaupa svona fjarstýrða þyrlu fyrir tölvunördinn minn. Þyrlan var ekki til en ég skellti mér nú samt upp í CMU að hitta Palla í kaffi. Þegar þangað var komið var ég allt í einu sannfærð um að ég hafi gleymt að borða og aðeins borðað hálfa muffins yfir daginn. Við fórum því á Crepes staðinn á Craig. Þegar ég var búin með um helminginn af matnum fattaði ég að ég væri ekkert svöng því að það var pöntuð pizza í Bayes computation kúrsinum og ég hafði borðað tvær hlussu sneiðar. Það er greinilega innprentað í mig að ég er líklegri til að gleyma að borða heldur en hafa borðað ;-)

Nýlega fengum við svo yndislegar fréttar að stúlka væri fædd. Sigrún og Erling orðin mamma og pabbi í annað sinn og Brynhildur Inga orðin stóra systir. Vá! Alveg frábært ;-) Við fengum sendar myndar (takk, Erling) og nýja daman ofsalega falleg. Við Palli hlökkum mikið til að heimsækja fjölskylduna.


9 svör
Aðeins að hægjast um - 07 Des 2006

Það er sem betur fer aðeins farið að hægjast um hjá okkur. Ég var í prófi í morgun og á núna bara eftir að halda tvo fyrirlestra og skrifa eina ritgerð. Palli er með fyrirlestur núna um gröf, mjög djúp stærðfræði sem ég skil ekki!

Teljarinn kominn niður í eins stafa tölu. Núna er þetta bara orðið ískyggilega stutt :-)


Eitt svar

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527