Nóvember, 2006

Yfirstaðnar kosningar - 09 Nóv 2006

Þá er þingkosningarnar búnar og úrslitin næstum ljós. Mikill sigur fyrir demókratana og gott fyrir Bandaríkin. Núna vona ég bara að þeim takist að velja forsetaframbjóðanda sem getur unnið. Það þýðir ekkert að velja einhvern sem er fullkominn á pappír og með flotta upphafsstafi. Síðan vona ég að þeir hætti að væla (eins og 2004!) og segi hvað þeir ætla að gera og hvernig og séu sjálfir sannfærðir um að það sé það rétta. Ég skil samt ekki alveg af hverju heimurinn heldur að eitthvað svakalegt muni breytast eftir að Rumsfeld sagði af sér. “Versti” karlinn er enn í stjórn og svo lengi sem hann hefur einhver völd þá er ekkert að fara að breytast - a.m.k. ekkert stórkostlegt.


Engin svör
Þingkosningar - 07 Nóv 2006

Þingkosningar fara fram í dag. Það er nú ekki hægt að segja að spennan sé mikil í Pennsylvaniu. Auglýsingarnar frá frambjóðendunum eru ansi fyndnar. Í fyrsta lagi þarf frambjóðandinn alltaf, í lok auglýsingar, að segja: “I am X and I approved this message” og í öðru lagi eru þessar auglýsingar yfirleitt mjög lummó og svo er allt í lagi að segja hvað sem er um andstæðinginn.

Allt gott í Pittsburgh. Teljarinn fór niður í “39″ svo að við erum kát.


Engin svör
Heimþrá - 05 Nóv 2006

Við Palli erum að farast úr heimþrá - ekki gaman. Grey Palli þarf að hughreysta mig daginn út og inn. Það styttist samt í heimferð. Það verður svo gott að koma heim bara til að vera heima en við höfum eiginlega ekki gert það síðan áður en við fluttum hingað út. Það hefur alltaf verið svo mikið í gangi eða heimsóknin heim svo stutt.

Er líka komin með ógeð á kúrsum sem taka endalausan tíma. Hlakka til þegar ég er búin með kúrsavinnunna, sem er fáránlega mikil.

Jæja nóg af neikvæðni! Við erum búin að fá okkur flotta stóla við borðstofuborðið og flotta mottu undir það. Það er bara orðið mjög huggulegt hjá okkur. Mamma mín var svo góð að senda mér dekurávísun til að kaupa mér föt fyrir jólin. Knús til bestu mömmu í heimi.

Steelers eru að spila núna, eru undir og útlitið ekki gott. Get rétt ímyndað mér að aðdáendurnir séu ekki sáttir núna enda eru þeir ekki búnir að standa sig vel og mikið um meiðsli hjá liðinu.


3 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527