Misserið senn á enda - 29 Nóv 2006

Jæja, það er brjálað að gera hérna í Pittsburgh. Á eftir að skila tveimur stórum ritgerðum ásamt fyrirlestri, nokkrum heimadæmum og fara í tvö próf. Ég er komin með ógeð á kúrsavinnu (hefur það komið fram áður !?!). Bjakk.

Ég var hins vegar að komast að því að ég þarf aðeins að taka 67 einingar í eiginlegum kúrsum í stað 72 eins og ég hélt - heilar fimm einingar! Þetta munar hins vegar miklu fyrir mig og þýðir að ég þarf bara að taka einn kúrs hvort misseri á (vonandi) lokaárinu mínu og bara tvo núna í vor.

Palli minn er líka að drukkna en það mesta verður búið á föstudaginn en eftir það á hann eitt heimapróf eftir og að fara yfir próf í kúrsinum sem hann TA-ar.

Jóhanna Jóhanna

9 svör

  1. Eg var ad fa mitt fyrsta heimaprof, i probiotics og tad litur ekki ut fyrir ad vera of erfitt, og vid hofum naestum 2 vikur til ad gera tad… en eg aetla ad reyna ad massa tad i dag og a morgun

    Sagði Greta — 30 Nóv 2006 @ 4:25

  2. Baráttukveðjur yfir hafið!!!

    Sagði Tóta — 30 Nóv 2006 @ 5:09

  3. Gangi þér vel í prófinu, Gréta :-)

    Takk fyrir, Tóta :-)

    Sagði Jóhanna — 30 Nóv 2006 @ 8:01

  4. verði ykkur að góðu, var þetta ekki almennilegt nammi, ekki með neinu hnertusmjöri :)

    Sagði Gréta — 04 Des 2006 @ 9:29

  5. hehe, jú, þetta var æðislegt og við erum búin með það …

    Sagði Jóhanna — 04 Des 2006 @ 2:34

  6. Það er aldeilis farið að styttast í heimförina, hlakka til að sjá ykkur!

    Sagði Brynhildur — 06 Des 2006 @ 5:41

  7. vá það eru bara 10 dagar hjá ykkur í heimför og 2 vikur hjá okkur :)

    Sagði Gréta — 06 Des 2006 @ 11:03

  8. Oh, hlakka til að sjá ykkur líka, Brynhildur.

    Já, Gréta þetta er algjört æði, fór í Whole Foods í gær og keypti krydd og maple sýróp fyrir ykkur. Var það eitthvað fleira?

    Er að fara að skila ritgerð no. 1 á eftir … Hin er á þriðjudaginn! Og, próf á morgun …

    Sagði Jóhanna — 06 Des 2006 @ 12:14

  9. gangi þér vel í öllu þessu brjálæði, ég var að byrja að læra fyrir próf sem er á mánudaginn.
    Nei það var ekkert fleira, takk takk

    Sagði Gréta — 06 Des 2006 @ 1:08

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527