Styttist og styttist - 10 Nóv 2006

Núna styttist aldeilis í heimferðina góðu. Mér finnst tíminn allt í einu líða svo hratt. Það er gott því það styttist í heimferð en ég er samt orðin dálítið stressuð. Allt í einu þyrmdi yfir mig allt sem ég á eftir að gera og klára í skólanum og vinnunni fyrir heimferð. Ótrúlegt alveg - aldrei hægt að gera manni til hæfis!

Síðustu helgar höfum við Palli dekrað við okkur með því að fara á Crepes staðinn á Walnut stræti. Þetta er alveg æðislega kósý staður og frönsku pönnukökurnar og kaffið æði. Við höfum ákveðið að gera þessar ferðir að helgarhefð. Mmm…

Á Thanksgiving byrjar jólavertíðin í Bandaríkjunum og þá ætlum við að fylgja hefðinni og skella okkur í Grove City í jólainnkaup. Það má búast við örtröð. Mér finnst voðalega gott að hafa Thanksgiving sem svona tímapunkt þar sem jólin byrja - ekkert brjálæði eins og heima. Eitt er reyndar skrýtið, Bandaríkjamenn klára undirbúninginn um miðjan desember, njóta svo jólanna og taka allt skrautið og draslið niður fyrir áramót.

Jóhanna Jóhanna

3 svör

  1. Gott að hafa sína dekurdaga. Knús. Mamma.

    Sagði mamma. — 11 Nóv 2006 @ 5:55

  2. dekrið okkar um helgar er að sem ég “baka” og núna voru gömlu góðu kornflekskökurnar fyrir valinu :)

    Sagði Gréta — 11 Nóv 2006 @ 9:11

  3. Mmm, kornflekskökur. Langt síðan ég hef bragðað þær.

    Fórum í J.Crew í gær og ég keypti mér gallabuxur, peysu, tvö boli og tvö hlýraboli til að vera í innanundir. Stígvélin sem ég var að spá voru á tilboði en bara til í 40, svo ég er enn að spá hvort ég eigi að kaupa þau á netinu (ekki á tilboði)

    Knús

    Sagði Jóhanna — 12 Nóv 2006 @ 12:41

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527