Nóvember, 2006

Misserið senn á enda - 29 Nóv 2006

Jæja, það er brjálað að gera hérna í Pittsburgh. Á eftir að skila tveimur stórum ritgerðum ásamt fyrirlestri, nokkrum heimadæmum og fara í tvö próf. Ég er komin með ógeð á kúrsavinnu (hefur það komið fram áður !?!). Bjakk.

Ég var hins vegar að komast að því að ég þarf aðeins að taka 67 einingar í eiginlegum kúrsum í stað 72 eins og ég hélt - heilar fimm einingar! Þetta munar hins vegar miklu fyrir mig og þýðir að ég þarf bara að taka einn kúrs hvort misseri á (vonandi) lokaárinu mínu og bara tvo núna í vor.

Palli minn er líka að drukkna en það mesta verður búið á föstudaginn en eftir það á hann eitt heimapróf eftir og að fara yfir próf í kúrsinum sem hann TA-ar.


9 svör
Ísland, júlí 2006 - 26 Nóv 2006

Og nokkrar myndir frá Íslandi síðasta sumar. Það var yndislegt að koma heim þó tíminn og hafi verið stuttur og við aðeins náð að hitta brotabrot af þeim sem við vildum.

IMG_0638.jpg

Ég á Hóli

IMG_0640.jpg

Birna og ég á Börmum

IMG_0642.jpg

Jón og Palli á Börmum

IMG_0652.jpg

Brynhildur Inga, fallega dóttir Erlings og Sigrúnar, og ég

IMG_0281.jpg

Fjölskyldan Holtsbúð 55


3 svör
Króatía, júní 2006 - 26 Nóv 2006

Já, þvílíkur dugnaður í minni. Hér koma nokkrar myndir úr Króatíuhluta ferðalagsins síðasta sumar. Þetta var ekkert nema sól og sæla og fjölskyldudraumur ;-)

IMG_0224.jpg

Hvílst í skugganum í Sibenik

IMG_0228.jpg

Kirkjan í Sibenik - Íbúarnir virðast mjög stoltir af henni

IMG_0229.jpg

Strandlíf - húsið var alveg við ströndina

IMG_0237.jpg

Gamalt húsþak í Primosten (sætur strandbær)

IMG_0241.jpg

Falleg náttúra og baðstaður í Krka þjóðgarðinum

IMG_0253.jpg

Þetta “Scrable” var mikið spilað - minnir að þetta mynstur hafi verið stigament ferðarinnar og Palli náði því

IMG_0259.jpg

Palli og Gunnar á “jetsky”

IMG_0611.jpg

Allir saman úti að borða

IMG_0627.jpg

Gaman á háhest, Einar Björn og Vilhjálmur. Það var heilmikil hátið og tónleikar á torginu þetta kvöld

IMG_0637.jpg

Seinasta kvöldið


Eitt svar
Þakkargjörð - 25 Nóv 2006

Við erum búin að vera í fríi síðan á miðvikudag - yndislegt. Það er nú samt allt of mikið að gera þannig að restin af helginni verður tekin undir vinnu. Á Þakkargjörðardaginn sjálfan borðuðum við íslenskan lambahrygg, þetta var aðeins smá hluti úr hrygg - alveg passlegt fyrir tvo. Í gær - á svörtum föstudegi - héldum við til Grove city í jólainnkaup. Þarna var hrikalega mikið af fólki en þar sem þetta er útimoll truflaði það okkur ekkert. Þar sem það eru bara tveir veitingastaðir og “food court” þarna komum við bara við í Whole Foods og keyptum okkur dýrindis samlokur í nesti.


3 svör
Austurríki, júní 2006 - 24 Nóv 2006

Jæja, nokkrar myndir frá Austurríkishluta (og Tékklands) ferðarinnar síðasta sumar. Við heimsóttum Eyjólf, Heidi, Óðinn og Freyju. Yndislegur tími eins glöggt sést:

aust_skogarsel.jpg

Skógarsel (Waldhausl) er sælureitur í Muhlviertel, Austurríki

cezkykrumlov_fedgar.jpg

Feðgar í Cezky Krumlov, Tékklandi

cezkykrumlov.jpg
Lækur í Cezky Krumlov
aust_systkin.jpg
Systkinin í fjallgöngu og Palli að fíflast en Óðinn og Freyja prúð
aust_vid.jpg
Hjónin í fjallgöngunni
aust_kyr.jpg
Beljur á beit í Ölpunum

Eitt svar
Tvær myndir - 23 Nóv 2006

Bara tvær myndir frá því úr ferðalaginu síðasta sumar.

Palli að borða Pizzu
Parísarhjólið í London


Eitt svar
Pitsa! - 18 Nóv 2006

Mmm! Palla pitsa er í ofninum núna.

Fór í tíma áðan. Á laugardegi - asnalegt. Voðalega finnst mér “metnaðarfullir” kennarar stundum leiðinlegar. Það hafa tveir tíma fallið niður vegna þess að prófessorinn sem kennir kúrsinum hefur verið í burtu. Þá vill hann auðvitað hafa aukatíma. Í dag var tíminn svo á kaffihúsi og var svona frekar slakur.

Akkúrat 4 vikur þar til við leggjum í hann. Jeij!


Eitt svar
Mikið að gera og tilhlökkun - 16 Nóv 2006

Eins og lesendur gera sér eflaust grein fyrir þá hlökkum við Palli mikið til að komast heim til Íslands. Þetta misseri hefur verið litað af þessari tilhlökkun. Þegar við settum teljarann á síðuna voru fleiri en 90 dagar í heimför núna eru þeir aðeins 30 og í næstu viku er Thanksgiving sem gerir biðina aðeins bærilegri.

Annars er heilmikið að gera í því að klára misserið í skólanum og klára verkefni í vinnunni fyrir heimför. Ég fer í tvö lokapróf og þarf að gera tvö lokaverkefni, sem bæði verða/eru mikil vinna. Síðan erum við að vinna í styrkumsókn sem á að vera fyrir samstarfsverkefni nokkuð margra háskóla í Bandaríkjunum og alltaf er nóg að gera í analýsu og í að leita eftir og lesa sér til um tilvonandi doktorsverkefni.


2 svör
Hundurinn át bloggfærsluna mína - 13 Nóv 2006

Ég hef nú reyndar ekki heyrt svona góðar afsakanir frá nemendum mínum. Það fer alltaf eftir kennaranum hver stefnan er varðandi skil á heimadæmum. Stundum hafa nemendur þurft að skila dæmum í hólfið mitt áður en skrifstofan lokar til þess að ég taki við því. Þau fatta það frekar fljótt að ég bíð ekki eins og varðhundur til klukkan 5, heldur næ ég í þau daginn eftir, … oftast nær eftir hádegi. Aðrir eru seinni í þessu og biðja um smá frest sem ég veiti yfirleitt. Þar sem yfirferð dæma er það leiðinlegasta sem ég veit, bíð ég alltaf með það fram á síðustu stundu. Ég réttlæti þetta með því að ef ég byrjaði snemma á að fara yfir dæmin þá myndi ég eyða (og þá meina ég eyða, ekki verja) alltof miklum tíma í það, ég þori varla að prófa hvort ég hafi rangt fyrir mér.

En þetta misserið er ég að kenna dæmatíma í stærðfræðigreiningu fyrir (verðandi) viðskiptafræðinga, ekki alveg móttækilegustu nemendurnir. Stefnan í heimadæmaskilum er ströng: dæmum skilað á fyrstu 10 mínútunum í tíma á fimmtudögum. Punktur! Engar undantekningar, ekkert væl. Ég fékk sem sagt skýrar leiðbeiningar um að alls ekki mætti taka við neinum heimadæmum eftir þessar 10 mínútur. Jafnvel þótt nemendur væru löglega afsakaðir og gætu bevísað jarteikn af einhverju tagi, þá get ég ekki tekið mark á því. Ef svo óheppilega vildi til að lastbíll myndi valta yfir nemanda á leið í tíma og hann ekki ná að skila dæmunum á tilsettum tíma, þá er svarið ennþá nei.

Ég er ekki alveg að fíla mig í þessu hlutverki, finnst þetta einum of mikil bjúrókrasía. Kannski er ég farinn að linast með aldrinum og orðinn of vanur einkunnaverðbólgu og öðrum kvillum sem hrjá menntakerfið hérna vestanhafs. Einhvern veginn finnst mér mikilvægara að krakkarnir geri dæmin á eigin spýtur. Mér skilst að það sé til of mikils mælst, pdf skjal með lausnum við öllum dæmunum í bókinni gengur milli manna í skólanum og það tók mig 30 sek að finna það á google.

Í fréttum er annars þetta helst. Við Jóhanna sáum The Departed á föstudaginn, mögnuð mynd eftir Scorsese mæli sterklega með henni. Ég sá Dennis Quaid um daginn, það er nefninlega verið að taka upp mynd í CMU þessa dagana, hann var með skegg svo ég ætlaði varla að þekkja hann. Steelers unnu loksins leik, lítur ekki út fyrir að þeir komist í Ofurskálina þetta árið.


4 svör
Styttist og styttist - 10 Nóv 2006

Núna styttist aldeilis í heimferðina góðu. Mér finnst tíminn allt í einu líða svo hratt. Það er gott því það styttist í heimferð en ég er samt orðin dálítið stressuð. Allt í einu þyrmdi yfir mig allt sem ég á eftir að gera og klára í skólanum og vinnunni fyrir heimferð. Ótrúlegt alveg - aldrei hægt að gera manni til hæfis!

Síðustu helgar höfum við Palli dekrað við okkur með því að fara á Crepes staðinn á Walnut stræti. Þetta er alveg æðislega kósý staður og frönsku pönnukökurnar og kaffið æði. Við höfum ákveðið að gera þessar ferðir að helgarhefð. Mmm…

Á Thanksgiving byrjar jólavertíðin í Bandaríkjunum og þá ætlum við að fylgja hefðinni og skella okkur í Grove City í jólainnkaup. Það má búast við örtröð. Mér finnst voðalega gott að hafa Thanksgiving sem svona tímapunkt þar sem jólin byrja - ekkert brjálæði eins og heima. Eitt er reyndar skrýtið, Bandaríkjamenn klára undirbúninginn um miðjan desember, njóta svo jólanna og taka allt skrautið og draslið niður fyrir áramót.


3 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527