Október, 2006

Eldur eldur! - 29 Okt 2006

Þegar ég vaknaði í morgun fannst mér eitthvað undarleg lykt frammi. Ég kveiti á reykelsi og spáði svo ekkert meir í þessu. 10 mínútum síðar heyrast einhver svakaleg læti og ég spái nú ekkert í því heldur fyrr en ég heyri að það eru slökkviliðsbílar á leið inn á planið. Við Palli hendumst út og bíðum ásamt öðrum úr blokkinni eftir að slökkviliðið gefi grænt ljós á að allt sé í lagi. Ég veit í raun ekki hvað gerðist annað en að vonda lyktin kom af fjórðu hæð. Það er alveg ljóst að brunabjallan í blokkinni er eitthvað undarleg enda fattaði ég ekkert að lætin voru í bjöllunni.

Hrekkjavakan var þessa helgina og auk þess var skipt yfir í vetrartíma. Við græddum alveg heilan klukkutíma sem nýttur var í að sofa enn þá meira frameftir.

Það styttist óðum í heimferð. Ég verð alltaf svo glöð þegar teljarinn skiptir niður um tug!


2 svör
Panti pant - 26 Okt 2006

Við mamma vorum í heljarinnar verslunarleiðangri á netinu að kaupa dót sem við Palli komum með heim um jólin. Þótt ótrúlegt sé hefur nú ekki mikið gerst síðan síðast var fært inn á þessa síðu fyrir utan það að ég fór til New Orleans. Planið er að setja inn myndir frá ferðinni fljótlega. Ekki samt taka “fljótlega” of alvarlega. Það er nú samt hálfskammarlegt að enn séu “Ágúst færslur” inni á upphafssíðunni!


Eitt svar

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527