- Moll og brauðrétturinn - 30 Sep 2006
-
Fórum í Ross Park Moll áðan. Það er svo langt síðan við fórum þangað síðast að breytingarnar voru bara þónokkrar. Við flýttum okkar samt í gegn, fórum aðalega til að kaupa buxur á Palla í gamla Kaufmanns (núna Macys) og rafmagnshitara í Sears. Palla finnst nefnilega ekkert gaman í búðum svo að það var fínt að fara að kaupa nákvæmlega eins buxur og eru orðnar úr sér gengnar… Annars keypti Macys Kaufmanns en búðin er sem betur fer alveg óbreytt.
Núna blæs hitarinn á tærnar mínar - mjög notalegt!
Í gærkvöldi fórum við í kveðjupartý og pot-luck. Mjög gaman. Ég kom með brauðréttinn og auðvitað kláraðist hann ;-) okkur Palla til mikillar og lítillar ánægju. Það hefði verið þægilegt að eiga smá afgang. Hef núna farið með réttinn í þrjú pot-luck og alltaf falla útlendingarnir fyrir honum. Er samt farin að gera tvær útgáfur, grænmetis annars vegar og með skinku hins vegar, svona svo að allir fái eitthvað við sitt hæfi.
Jæja nóg um brauðréttinn. Knús og kveðjur til Lundar þar sem mamma og pabbi eru í heimsókn hjá Grétu syss og Gumma.
-
8 svör
September, 2006
- Í vinnunni - 24 Sep 2006
-
Ekkert merkilegt að gerast í Pittsburgh. Ég er í vinnunni núna að búa til gröf fyrir pósterinn sem við verðum með á ráðstefnunni eftir tvær vikur og skrifa forrit til að raða genum eftir mikilvægi út frá fyrri analýsu.
Í gærkvöldi fórum við, ásamt fleirum úr mannerfðafræðideildinni, á Hard Rock. Þetta var kveðjupartý fyrir Abby sem er að fara til Yale í október. Kíktum svo upp á Mt. Washington, en þaðan er útsýnið yfir borgina mjög glæsilegt. Næsta föstudag er svo annað kveðjupartý, sem verður pot-luck. En það þýðir að ég þarf að finna upp á einhverju til að koma með.
Ég er líka að vinna í því að finna doktorsverkefni. Er komin með alveg nóg fyrir hagnýta hlutann og þarf að fara að velja mér eitthvað spennandi fyrir fræðilega hlutann. Ég verð að viðurkenna að það er mjög erfitt…
-
Eitt svar
- Eirðarleysi og 3 mánuðir - 17 Sep 2006
-
3 mánuðir þar til við leggjum í hann heim í jólafrí. Ég hlakka svo til. Er alltof eirðarlaus þessa dagana. Ég á að vera að vinna en geri það samt ekki þrátt fyrir að hafa nóg að gera.
Það eru 3 vikur þangað til ég fer á ráðstefnuna. Ég verð með tveim póstdokkum í herbergi. Við ætlum að hittast í hádegismat á föstudaginn, svona svo við vitum eitthvað hver um aðra. Ég þekki aðra þeirra ekki neitt en hina frekar vel.
-
4 svör
- Pappír samþykktur - 15 Sep 2006
-
Vorum að fá pappír samþykktan. Hann mun þá birtast á netinu á næstu dögum og síðan í journalinum. Ég er annar höfundur á þessum pappír og gerði alla analýsuna og skrifaði þar af leiðandi mestan hluta aðferða- og niðurstöðukaflans.
Það er afmælishryna í gangi og ætla ég að nota tækifærið og óska öllum afmælisbörnum til hamingju í einni færslu (það er aldrei að vita hve langt er í næstu færslu). Til hamingju Guðrún Yrsa með daginn 9. sept, mamma með daginn 14. sept, og Birna tengdó með daginn 17. sept. Knús til allra.
-
2 svör
- Jeij - 08 Sep 2006
-
Ég var ekki fyrr búin að setja síðustu færslu inn að Palli athugar með jólaprófstöfluna og hún kom inn í gær. Við erum því búin að bóka flug heim 16. des (lendum á Íslandi þann 17.) og förum aftur út 8. jan. Þetta gerir 22 daga frí og verður lengsta samfellda dvöl okkar í Íslandi frá því áður en við fluttum til USA - ekki er verra að þetta verður alvöru frí. Jeij og jibbíjeij!
-
3 svör
- Enn að bíða … - 07 Sep 2006
-
Við bíðum enn með að kaupa flugmiðana heim til Íslands um jólin. Mér finnst ég ekki getað farið að hlakka til fyrr en miðarnir hafa verið bókar, jafnvel þó að það sé alveg á hreinu að við ætlum og munum koma heim þessi jól. Ég er meira að segja búin að fá leyfi fyrir frekar löngu fríi og vona bara að ég geti notað mér það sem mest.
Annars eru flugmiðarnir til New Orleans komnir í hús og rétt rúmur mánuður þar til ég held á ráðstefnuna. Í ár er ég ekki fyrsti höfundur á neinu svo að ég get bara notið þess að hlusta á og læra af öðrum. Ég mun nú samt vera við veggspjaldið okkar en það er nú miklu minna mál en að halda fyrirlestur.
Veðrið hefur verið alveg geggjað að undanförnu - hlýtt og þurrt og dálítið ferskt norðlægt loft.
-
Eitt svar
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
