Ágúst, 2006

Hlekkir lagaðir og skóli - 28 Ágú 2006

Var að laga hlekkina hér til hliðar og eyddi hlekkjum sem vísa á heimasíður sem ekkert er fært inn á. Bætti meðal annars Grétu systur inn. Hún er núna í Lundi ásamt Gumma sínum.

Haustmisseri byrjar í dag. Ég er í þremur kúrsum og Palli í einum. Hann hittir svo prófessorinn í kúrsinum sem hann er að TA-a á eftir. Misserið leggst svona ágætlega í mig. Ég er bara orðin ansi þreytt á kúrsum.

Þetta á að vera heilsumisseri - borða hollt og hreyfa sig. Byrjuðum fyrir tveim vikum og gengur bara vel að standa við þetta. Ég er líka hætt að naga neglur - ekkert nagað síðustu þrjár vikur. Við sjáum svo bara til með hvernig það mun ganga þegar líður á misserið og stressið eykst.


2 svör
Uppselt - 21 Ágú 2006

Jiminn - allt að verða uppselt hjá Flugleiðum um jólin. Við Palli erum orðin stressuð um að komast heim. Allt CMU að kenna sem getur ekki asnast til að hafa próftöfluna tilbúna. Palli þarf nefnilega að fara yfir próf í kúrsinum sem hann er að TA-a og við getum ekki skipulegt heimferð um jól nema hann viti hvenær prófið er. Við viljum helst fara fyrir 20. des. sem er fyrsti mögulegi dagur miðað við að prófið sé á síðasta prófdegi.

Áttum 1. árs brúðkaupsafmæli í gær. Af því tilefni höfðum við það mjög ljúft alla helgina (svona eins og flestar helgar í sumar) og fórum út á borða á rosa fínan stað á laugardeginum. Ótrúlegt hvað tíminn líður.

Það kom svo norðlægur vindur í morgun. Mikið var það gott enda fylgir minni hausverkur ferska loftinu.


5 svör
Góður dagur - 09 Ágú 2006

Í gær var góður dagur. Hitinn fór bara upp í 28 gráður og niður fyrir 20 um nóttina. Það var hægt að vera í síðbuxum og stuttermabol inni í stað þess pils og hlírabols. Svona góð er spáin næstu daga. Þetta þýðir vonandi að maður fái smá orku aftur og fari að afkasta einhverju.


9 svör
Hitinn og helgin - 07 Ágú 2006

Á laugardag fórum við í Piknik. Hitinn var lúmskur og þegar heim var komið vorum við svo dösuð að við fengum okkur síðdegisblund. Á sunnudeginum fórum við líka í Piknik ásamt fleirum og það var sama sagan. Hitinn hefur samt ekkert verið svo hrikalegur - við erum orðin svo vön! Við sofum a.m.k. á nóttunni og biðjum ekki um meira en það.

Palla hefur verið úthlutaður kúrs til að TA-a á haustmisseri. Próftaflan á að vera tilbúin á allra næstu dögum svo að bráðlega munum við geta skipulagt heimferð um jólin. Jeij!

Að lokum. Til hamingju með fyrsta árið (í gær), Sigrún og Erling ;-)


Eitt svar

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527