- Smá skýrsla - 18 Júl 2006
-
Jæja, nú er rúm vika síðan við komum aftur heim til Pittsburgh. Við erum alveg ferlega dösuð í hitanum. Ekkert er eldað á okkar heimili annað en salat og píta og annað einfalt sem ekki þarf að nota ofninn.
Skil ekki hvernig fólki verður eitthvað úr verki. Jafnvel þó það sé loftkæling í skólanum þá er maður samt svo þreyttur eitthvað. Næsta sumar reynum við að koma vera á Íslandi þegar heitasti tíminn er í Pittsburgh.
Er búin að fá út úr prófunum og náði bara tveimur af þremur og þarf því að taka það aftur. Frekar pirrandi. Annars gengur bara vel í öðrum og skemmtilegri verkefnum. Er búin að ákveða að fara á ASHG ráðstefnuna í New Orleans í október og sleppa því að fara á IGES í Florida í nóvemeber. Styrkurinn borgar nefnilega bara eina ráðstefnuferð á ári.
Erum búin að fara tvisvar í bíó síðan við komum. Það er svo ansi gott að komast í loftkælt rými! Sáum The Devil Wears Prada og An Inconvenient Truth. Mælum með báðum.
Ég ætla ekkert að lofa að setja inn myndir úr ferðalaginu bráðum en við gerum okkar besta.
-
Jóhanna
6 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

við gummi erum búin að kaupa flugmiðann út, förum 16. ágúst kl 7.15, bara rétt mánuður….
Sagði Gréta — 18 Júl 2006 @ 11:41
Flott. Er kominn fiðringur í maga!?!
Sagði Jóhanna — 18 Júl 2006 @ 1:13
já og líka stress…
Sagði Gréta — 19 Júl 2006 @ 5:40
Hehe. Þetta er samt alls ekki eins erfitt og þú heldur. Knús.
Sagði Jóhanna — 19 Júl 2006 @ 12:50
Úff, það er sama uppi á teningnum hér - helst ekki kveikt á neinum rafmagstækjum í eldhúsinu ef hjá því verður komist! Hlakka mikið til að komast í 12°-14° C á Íslandi ;)
En Florida í nóvember er örugglega indælt! :)
Takk fyrir síðast - það var virkilega gaman að sjá ykkur!
Sagði Arndís — 20 Júl 2006 @ 8:53
Já, takk sömuleiðis :-)
Sagði Jóhanna — 21 Júl 2006 @ 10:17