- Flickr - Pizzastaður - 29 Júl 2006
-

Vorum að skella nokkrum myndum yfir á Flickr. Ég held við munum koma til með að nota það héðan í frá fyrir myndirnar okkar. Meira um það síðar -
Eitt svar
Júlí, 2006
- Húsgagnakaup - 25 Júl 2006
-
Við fengum auglýsingabækling (einn af mörgum) um daginn og sáum flottan stól. Við ákváðum því að kíkja í búðina síðasta sunnudag. Þar sem við vorum nú í þessum hugleiðingum á annað borð þá skelltum við okkur á sófa og borðstofuborð líka. Það var kominn tími á sófa enda svo ferlega óþægilegt að sitja í svefnsófanum.
Við erum svo svakalega ánægð með okkur því að yfirleitt þegar við erum að spá í að fá okkur eitthvað þá hættum við alltaf við. Við þurfum jú ekkert á þessu að halda.
Eyddi reyndar enn meiru á föstudeginum þegar ég skellti mér á pils, buxur og boli í J-Crew. Ég var svo glöð að komast í J-Crew buxur. Þetta voru reyndar svona víðar sumarbuxur - en hvað með það!
-
2 svör
- Smá skýrsla - 18 Júl 2006
-
Jæja, nú er rúm vika síðan við komum aftur heim til Pittsburgh. Við erum alveg ferlega dösuð í hitanum. Ekkert er eldað á okkar heimili annað en salat og píta og annað einfalt sem ekki þarf að nota ofninn.
Skil ekki hvernig fólki verður eitthvað úr verki. Jafnvel þó það sé loftkæling í skólanum þá er maður samt svo þreyttur eitthvað. Næsta sumar reynum við að koma vera á Íslandi þegar heitasti tíminn er í Pittsburgh.
Er búin að fá út úr prófunum og náði bara tveimur af þremur og þarf því að taka það aftur. Frekar pirrandi. Annars gengur bara vel í öðrum og skemmtilegri verkefnum. Er búin að ákveða að fara á ASHG ráðstefnuna í New Orleans í október og sleppa því að fara á IGES í Florida í nóvemeber. Styrkurinn borgar nefnilega bara eina ráðstefnuferð á ári.
Erum búin að fara tvisvar í bíó síðan við komum. Það er svo ansi gott að komast í loftkælt rými! Sáum The Devil Wears Prada og An Inconvenient Truth. Mælum með báðum.
Ég ætla ekkert að lofa að setja inn myndir úr ferðalaginu bráðum en við gerum okkar besta.
-
6 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
