Rapport - 14 Jún 2006

Jóhanna kláraði verklega prófið í gær og sat við 9 tíma samfleytt án þess að smakka vott né þurrt. Ætli þetta sé ekki síðasta alvöru prófið sem hún tekur. Þó að Qualifiers próf séu almennt strembin þá skil ég ekki alveg hvernig maður komst í gegnum stúdentsprófin á sínum tíma, maður er greinilega orðinn of góðu vanur í hárri elli.

Annars tók tölvan mín upp á að bila, móðurborðið ákvað að deyja síðasta föstudag. Sem betur fer er hún enn í ábyrgð svo ég fór með hana á verkstæðið hérna í CMU. Þetta er einn af mörgum kostum þess að nema við skóla þar sem foreldrar blæða út sem nemur einum jeppa á ári fyrir skólagjöld. Það er tölvuverkstæði á staðnum sem að gerir við tölvur undir kostnaðarverði og rukkaði mig ekki krónu fyrir þar sem gripurinn var í ábyrgð. Síðasta helgi var erfið án gripsins, er ekki viss um að ég hefði haldið þetta út mikið lengur.

Nú er bara að koma sér í andlegar stellingar fyrir sumarfrí.

Palli Palli

3 svör

  1. Ég tel þessa stúdentsprófspælingu vera mikla speki. Hvernig í ósköpunum var þetta mögulegt? Ég mundi aldrei láta bjóða mér þetta í dag. Ég hef reyndar kenningu og hún er sú að í gamla daga þá lærði maður náttúrulega ekki nokkurn skapaðan hlut fyrr en stúdentsprófin skullu á og því voru góð ráð dýr. Í dag lærir maður jafnt og þétt á hverjum degi og þarf því engin próf, nú og ef það er próf, þá lærir maður ekkert fyrir það því maður kann námsefnið fyrirfram. En tali hver fyrir sig svosem.

    Til hamingju Jóhanna, hlakka til að heyra niðurstöður.

    Sagði Matti — 15 Jún 2006 @ 12:17

  2. Til hamingju, Jóhannan mín, með próflokin! Þetta hefur aldeilis verið strembið lokapróf. Hlakka til að sjá ykkur bæði á Íslandinu eftir rúmar 2 vikur. Hafið það gott í fríinu :)

    Sagði Guðlaug — 16 Jún 2006 @ 4:47

  3. Takk takk. Var ad klara sidasta profid. Thad var lettasta fagid en audvita gekk mer verst og mjog illa i thvi.

    Hlokkum lika svakalega til ad hitta ykkur og alla hina heima - otrulega langt sidan vid hofum sest.

    Sagði Johanna — 16 Jún 2006 @ 4:47

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527