Júní, 2006

Rapport - 14 Jún 2006

Jóhanna kláraði verklega prófið í gær og sat við 9 tíma samfleytt án þess að smakka vott né þurrt. Ætli þetta sé ekki síðasta alvöru prófið sem hún tekur. Þó að Qualifiers próf séu almennt strembin þá skil ég ekki alveg hvernig maður komst í gegnum stúdentsprófin á sínum tíma, maður er greinilega orðinn of góðu vanur í hárri elli.

Annars tók tölvan mín upp á að bila, móðurborðið ákvað að deyja síðasta föstudag. Sem betur fer er hún enn í ábyrgð svo ég fór með hana á verkstæðið hérna í CMU. Þetta er einn af mörgum kostum þess að nema við skóla þar sem foreldrar blæða út sem nemur einum jeppa á ári fyrir skólagjöld. Það er tölvuverkstæði á staðnum sem að gerir við tölvur undir kostnaðarverði og rukkaði mig ekki krónu fyrir þar sem gripurinn var í ábyrgð. Síðasta helgi var erfið án gripsins, er ekki viss um að ég hefði haldið þetta út mikið lengur.

Nú er bara að koma sér í andlegar stellingar fyrir sumarfrí.


3 svör
Þreytt - 11 Jún 2006

Er eitthvað voðalega dösuð. Eina sem ég afrekaði í lærdómi í dag var að labba í skólann og ná í glósurnar mína. Prófið á þriðjudaginn er “verklegt”, við fáum dataset sem við eigum að analýsa og skrifa skýrslu á 8 klukkustundum. Ég er aðalega stressuð á að falla á tíma.

Ég veit ekkert hvernig prófið gekk á föstudaginn, veit bara að ekkert dæmi var fullkomlega leyst hjá mér. Nennti ekki að tala við neinn eftir prófið svo að ég veit heldur ekki hvar ég stend.


3 svör
Þá byrjar ballið! - 09 Jún 2006

Próf eftir nákvæmlega tvo tíma. Labba í hringi núna. Á þriðjudaginn er átta tíma próf og á föstudaginn er síðasta prófið. Daginn eftir brunum við svo til Baltimore og höldum í fríið. Jeij!


3 svör
Lögfræðimál og lærdómur - 03 Jún 2006

Þurfti að lesa 72. blaðsíðna einkaleyfisumsókn í gær og í dag. Asnalegt að lesa pappírana sína á lögfræðimáli. Í miklu uppáhaldi er frasinn: “without limitation” - best að baktryggja sig algjörlega.

Er við það að lesa yfir mig af fræðilegri tölfræði og komin með ógeð á tölfræðingum og tilraunum þeirra til að skrifa stærðfræðilegar sannanir. Minna en vika í próf og ég er ekki búin að fara yfir allt efnið - arg!


Engin svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527