Dálítið stressuð - 22 Maí 2006

Nú er ég orðin dálítið stressuð fyrir prófunum. Finnst einhvern veginn allir vera að læra á fullu nema ég. Ég er bara að vinna og rembast við að vakna á morgnana. Hef ákveðið að læra bara undir fræðilega prófið núna og líta svo bara á efnið fyrir hin tvö prófin daga eftir fræðilega prófið. Kíkti nefnilega á public health prófið frá því í fyrra og það er bara svo fáránlega létt að jafnvel þó það verði eitthvað erfiðara í ár þá mun það samt enn vera létt. Ég ætla því ekkert að kíkja á efnið fyrr en tvo daga fyrir próf.

Búið að rigna svo mikið að það er bara kalt í Pittsburgh. Hitinn er vel undir meðallagi. Þetta á nú samt að lagast í vikunni og fara upp í 29 á föstudaginn. Efast um að ég verði mjög glöð þá.

Á laugardaginn röltum við upp í Squirell Hill og kíktum í bókabúð. Sátum svo og glugguðum í bækur og blöð í nokkra klukkutíma. Skelltum okkur svo á okkar uppáhalds veitingastað áður en við röltum heim.

Hvernig pakkar maður fyrir þriggja vikna frí þegar maður flýgur hluta úr ferðinni með Ryanair sem leyfa barasta engan farangur? Við erum orðin svo vön Ameríku standardinum.

Jóhanna Jóhanna

3 svör

  1. maður þarf bara að vera í öllum fötunum, því maður er ekki vigtaður!!! :)

    Sagði Gréta — 22 Maí 2006 @ 11:29

  2. Já, auðvitað ;-)

    Sagði Jóhanna — 23 Maí 2006 @ 1:17

  3. Góður punktur hjá Grétu - mér hefði ekki dottið þetta í hug.:-)
    bestu kveðjur
    tengdó

    Sagði mamma og jón — 24 Maí 2006 @ 10:47

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527