- Draugabær - 29 Maí 2006
-
Í dag er Memorial Day hér í amríkunni, sem er svipuð og fyrsta helgin í júlí heima. Þegar við Jóhanna löbbuðum í skólann í dag voru engir bílar á ferð og allt lokað. Vantaði bara Tumbleweeds til að undirstrika þetta.
Veðrið komst loksins aftur í lag eftir leiðindarigningu í síðustu viku, í dag var 31° og á morgun er spáð 34°. Lesendur bloggsins geta svo fylgst með á næstu vikum þar sem að afstaða til veðurs mun snarbreytast. Kvartað verður undan hita, raka, svefnleysi á næturna og svitabaði allan liðlangan daginn. Það er greinilegt að ég kann ekki gott að éta.
Fyrir viku síðan sáum við DaVinci lykilinn, bókin var ágætis afþreying, myndin: sæmileg afþreying. Skemmtilegast þótti mér samt að heyra eitt gott hneykslunar-hrumpfh frá einhverjum í salnum þegar útskýrt var að María Magdalena hefði verið kona Jesú, ég átti erfitt með að skella ekki upp úr þegar ég heyrði þetta.
-
Engin svör
Maí, 2006
- Dálítið stressuð - 22 Maí 2006
-
Nú er ég orðin dálítið stressuð fyrir prófunum. Finnst einhvern veginn allir vera að læra á fullu nema ég. Ég er bara að vinna og rembast við að vakna á morgnana. Hef ákveðið að læra bara undir fræðilega prófið núna og líta svo bara á efnið fyrir hin tvö prófin daga eftir fræðilega prófið. Kíkti nefnilega á public health prófið frá því í fyrra og það er bara svo fáránlega létt að jafnvel þó það verði eitthvað erfiðara í ár þá mun það samt enn vera létt. Ég ætla því ekkert að kíkja á efnið fyrr en tvo daga fyrir próf.
Búið að rigna svo mikið að það er bara kalt í Pittsburgh. Hitinn er vel undir meðallagi. Þetta á nú samt að lagast í vikunni og fara upp í 29 á föstudaginn. Efast um að ég verði mjög glöð þá.
Á laugardaginn röltum við upp í Squirell Hill og kíktum í bókabúð. Sátum svo og glugguðum í bækur og blöð í nokkra klukkutíma. Skelltum okkur svo á okkar uppáhalds veitingastað áður en við röltum heim.
Hvernig pakkar maður fyrir þriggja vikna frí þegar maður flýgur hluta úr ferðinni með Ryanair sem leyfa barasta engan farangur? Við erum orðin svo vön Ameríku standardinum.
-
3 svör
- Annað review - 17 Maí 2006
-
Er að rembast við að skrifa annað review, núna fyrir Nature Genetics. Bara gaman að því. Ég hefði nú samt ekki trúað því hvað það er erfitt að gera svona, sértaklega ef eitthvað þarfnast gagnrýni og það þarf að vega og meta hvort mæla eigi með birtingu og á hvaða hraða. En eins og leiðbeinadinn minn segir þá er þetta mjög mikilvægt þjónusta við vísindasamfélagið.
Ég er aðeins byrjuð að læra fyrir prófin. Byrjaði á því léttasta og ætla að klára það sem fyrst svo ég þurfi ekki að hugsa meira um það fyrr en daginn fyrir próf. Planið er að hafa heilar tvær vikur bara fyrir fræðilega prófið.
Annars allt gott af frétta af okkur Palla. Palli búin í prófunum og er að reyna að sanna að eitthvað sem ég skil ekki gildi fyrir flottari tölu en e.
Maí og apríl hafa verið yfir meðallagi sólríkir en í síðustu viku byrjaði að rigna og það rignir bara stanslaust. Þannig á þetta að vera fram í næstu viku.
-
4 svör
- Prófafarganinu lokið - 15 Maí 2006
-
Var nú reyndar bara í tveimur prófum, lauk algebrunni síðasta þriðjudag og kláraði heimapróf dauðans í slembinetum núna rétt áðan. Ég held ég hafi aldrei fyrr nálgað jafnmikið af tvíliðustuðlum á einum degi eða beitt union bound af slíkri hörku.
Nú taka við rannsóknir til 17. júní þegar farið verður í sumarfrí dauðans. Það verður samt svoldið skrítið að fara í sumarfrí til útlanda þar sem hitastigið verður lægra en hérna í Pittsburgh og vonandi ekki jafn rakt.
-
3 svör
- Grískur matur - 08 Maí 2006
-
Vorum að koma af grískri matarhátíð í grísku kirkjunni á Forbes Ave. Mmm, mikið af góðum mat. Ég fékk matarlystina svo sannarlega aftur, það er gott.
Um helgina fór í til Abby sem er postdokk í mannerfðafræðinni en með doktrospróf í biostatistics frá Harvard. Hún náði í allt qulifiers dótið sitt, svo að nú hef ég fullt af dæmum (með lausnum) til að æfa mig á fyrir fræðilega prófið. Public health skólarnir skiptast víst á spurning, svo að það getur verið mjög gott að komast yfir gömul próf frá öðrum skólum. Við erum bara búin að fá eitt gamalt próf frá deildinni minni. Þá er bara vandamálið að fara að skipuleggja sig og byrja að læra.
-
3 svör
- Tvö ár búin - 04 Maí 2006
-
Var að fá einkunnirnar fyrir þetta misseri og náði öllu. Nú er ég sem sagt búin með tvö ár af þessu blessaða námi. Enn betra er að ég á ekki marga skyldukúrsa eftir en á samt eftir að fylla upp í einingakvótann. Samt nóg að gera eins og vanalega! En sex vikur og tveir dagar þar til við leggjum í hann í fríið góða. Ég hlakka mikið til.
Veðrið er ljúft þess dagana, 20+ á selsíus. Til að halda síðustu færslu áfram, þá má segja frá því að við sofum enn á nóttunni og meira að segja með sæng.
Við fengum góðan gest um síðustu helgi. Boris kom fyrir vinnuna, en þurfi ekki að vinna nema á laugardagskvöldið - auðvitað enn skemmtilegra fyrir okkur Palla. Við skelltum okkur aðeins út fyrir borgina á laugardeginum, þökk sé útiverunni er Palli orðin mjög brúnn og ég búin að fá nokkrar sætar freknur.
-
8 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
