Apríl, 2006

Tilhlökkun! - 23 Apr 2006

Nú er misserið senn á enda. Í næstu viku eru þrú lokapróf, tvö í tíma og eitt heimapróf. Tilhlökkunin fyrir sumrinu er því að ná hámarki núna, 8 vikur í að við leggjum í hann til Baltimore, þaðan til London, Trieste, Austurríkis, Króatíu og svo Íslands.

Nú þarf maður að fara að huga að qualifiers prófunum, ég er eiginlega stressuð yfir því að vera ekki orðin stressuð. Það er víst ekkert gefið að ná. Í fyrra var 50% fall í fræðilega hlutanum, aðeins minna fall í hagnýta hlutanum og ekkert fall í public health hlutanum, en fyrir hann þarf bara að lesa upp einn léttan kúrs.

Yndislegt veður í Pittsburgh þessa dagana - bolur og buxur og hægt að sofa á nóttunni!


11 svör
Að reima skó sinn - 12 Apr 2006

Ég keypti mér Puma skó um daginn, flottir í alla staði sem væri ekki til frásögu færandi nema hvað að reimarnar losna alltaf á þeim. Reimarnar eru eitthvað mjög sleipar og losna nokkrum sinnum á dag. Eina lausnin var því að skella sér á netið, leita uppi nýjar aðferðir til að reima og læra upp á nýtt það sem ég hef gert án þess að hugsa síðustu 20 árin.

Auðvitað er til yfirgripsmikil síða á netinu með fjöldan allan af hnútum. Eftir smá íhugun og útreikninga lærði ég þennan hnút sem er fáránlega einfaldur og á víst ekki að losna svo auðveldlega.

Skýrsla um reynslu mína af umræddum hnúti er svo væntanleg innan nokkurra missera.


4 svör
Eitthvað til að hlakka til - 06 Apr 2006

Litla systir mín og Gummi hennar eru búin að trúlofa sig. Ekkert smá æðislegt. Innilega til hamingju. Knús og kossar.

Núna getum við úr Holtsbúðar 55 fjölskyldunni aldeilis farið að hlakka til næsta stórviðburðar. Bara gaman.

Allt við það sama hjá okkur Ameríkuhjónunum. Nóg að gera í skólanum og vinnunni, en það hyllir brátt undir endann á misserinu - síðasti dagurinn er 28. apríl. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur alltaf áfram.


4 svör
4 klst - 02 Apr 2006

Töpuðum einni klukkustund í nótt. Það var breytt yfir í sumartíma og því er bara fjögurra klukkustunda munur á okkur og Íslandinu góða. Letidagur var í gær og kannski líka í dag.


Eitt svar

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527