- Vor! - 30 Mar 2006
-
Veðrið var frábært í dag, 18°C, sól og heiðskírt. Við Abby borðuðum úti í hádeginu. Á morgun er svo spáð 22°C og þrumuveðri seinni partinn - vorið er sem sagt að koma af alvöru… Það er sko um að gera að njóta þess á meðan hitinn er ekki óbærilegur. Ég hlakka ekkert voðalega til að læra undir prófin í júni, í hita og svita!
Annars allt í þessu fína af okkur hérna í Ameríku.
-
2 svör
Mars, 2006
- misc.market - 23 Mar 2006
-
Ég var að deyja úr framtakssemi á sunnudaginn. Tók mig til og hreinsaði allt af skrifborðinu sem hefur undanfarin misseri safnað á sig drasli og aldrei verið brúkað til lærdóms. Smellti af nokkrum myndum og sendi inn á misc.market klukkan 6 á sunnudagskvöldi. Nokkrum klukkutímum síðar var allt horfið, við $105 ríkari og miklu meira pláss í íbúðinni.
Á hverjum degi eru ca. 40-60 skilaboð inni á misc.market og allt frá leirtaui yfir í sportbíla er auglýst þarna. Það er líka snilld að fylgjast með rifrildum sem standa kannski yfir í heila viku. Það er nóg af vitleysingum þarna úti og öðrum sem finnst gaman að rífast í þeim.
-
3 svör
- Leigusamningur II - 20 Mar 2006
-
Við erum búin að ákveða að nenna ekki að flytja. Í gær seldum við skrifborð, stól og amerísku ryksuguna, það var ansi leiðinlegt að taka allt í sundur og flytja til viðtakanda. Við nennum því ómögulega að flytja draslið okkar í nýja íbúð, sem svo þarf að þrífa - bandarískar leiguíbúðir eru ekki þær hreinlegustu! Núna er hins vegar heilmikið pláss í íbúðinni…
-
6 svör
- Leigusamningur - 19 Mar 2006
-
Nú er sá tími ársins að leigusalinn vill fá að vita hvort við verðum áfram í íbúðinni eða ekki. Við eigum enn eftir að gera upp við okkur hvort við nennum að flytja. Okkur langar auðvitað í tvö herbergi svo að það fari nú betur um gestina okkar og við þurfum ekki að hafa skóladraslið inni í stofu.
Við vitum að það er ekki skortur á húsnæði hér í borg. Við munum eflaust ekki eiga í neinum vandræðum með að finna nýja íbúð, það er bara spurning um rétta staðsetningu, verð og svo auðvitað hvort við nennum að standa í þessu. Það er alveg á hreinu að ef við flytjum ekki núna, þá gerum við það ekki fyrr en við flytjum burt frá Pittsburgh.
-
Engin svör
- Fríið - 13 Mar 2006
-
Það var ljúft að þurfa ekki að mæta í neina tíma. Svaf til hádegis flesta daga og vann eftir hádegi. Á föstudagskvöldið buðum Palli tveimur póstdokkum í mannerfðafræðinni í heimagerða pitsu - ef þið ekki vissuð þá gerir Palli heimsins bestu pitsur.
9. apríl ætlum við til Cleveland, OH, á danssýningu hjá besta danshópi í Bandaríkjunum. Það væri nú skemmtilegra ef hópurinn kæmi til Pittsburgh á þessum rúnti um Bandaríkin enda er Cleveland “óvinaborg” Pittsburgh - undanfarin ár hafa þessar tvær borgir deilt fyrsta sætinu yfir borgir í USA þar sem best er að búa.
-
9 svör
- Vorfrí - 03 Mar 2006
-
Jæja, þá er komið að þessu. Við Palli uppgötvuðum svo fyrir nokkrum dögum að vorfríin okkar eru ekki á sama tíma, hans er viku seinna. Það er því ágætt að við keyptum ekki flugmiða til San Fransico eins og okkur hafði dreymt um!
Vikan gekk svo bara svona lala, endaði á að skila ekki einum heimadæmum þar sem þau gilda svo lítið til einkunnar og ég var svo ósköp þreytt að ég gat ómögulega vaknað í morgun til að gera þau, þau eru þokkabót fyrir leiðinlegan kúrs. Kennarinn er svona gaur sem heldur að þetta sé það mikilvægasta af öllu bara af því hann stundar rannsóknir á þessu sviði.
Það lítur hins vegar út fyrir að vorfríið muni fela í sér að þurfa ekki að mæta í tíma en ekki að þurfa að gera ekki neitt. Mér finnst það nú samt vera frí. Ég þarf sem sagt að review-a greinina, skrifa kafla í nýja grant umsókn um hvernig á að analysera ný gögn sem verið er að sækja um aðgang að, finna út hvað þarf að genotypera marga einstaklinga og hvort nógu margir hafi gefið DNA svo að við höfum nóg “statistical power” (hvað er það á íslensku?). Og ýmislegt fleira, nenni ómöglulega að telja allt upp!
En ég ætla líka að reyna að gera eitthvað skemmtilegt og kannski fara í klippingu!
-
12 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
