- Eitthvað til að hlakka til - 13 Feb 2006
-
Nú er loksins búið að ákveða dagana fyrir doktorsprófsprófin, svona próf til athuga hvort maður kunni nóg til að klára doktorsnámið, deildin vill ekkert vera að borga fyrir mann skólagjöldin ef maður kemur svo ekki til með að klára námið! Og þar sem búið er að ákveða þessa blessuðu prófdaga, getum við Palli loksins keypt flugmiðann til Króatíu, Austurríkis og Íslands.
Ég byrja svo á nýjum grant í lok júní, það er að segja ég mun fá launin mín frá öðrum granti. Þetta verður líklega tímabundið eða þar til búið er fá peninga til að halda augnsjúkdómaverkefninu áfram. Við vonum bara að okkur takist að fá peninga í fyrstu umsókn. Núverandi ríkisstjórn Bandaríkjanna er ekkert að dæla peningum í rannsóknir! Í nýja verkefninu mun ég forrita mikið, ef ég vil get ég notað tækifærið og lært að forrita í C og Python, eða einbeitt mér að R partinum.
Nú er maður orðin merkilegur, var að fá beiðni um að review-a rannsóknagrein. Get ekki sagt neitt meir um það enda allt saman trúnaðarmál. Nei, annars er ég ekki svo merkileg, leiðbeinandinn minn fékk beiðnina og hann spurði journalinn hvort ég mætti ekki gera það með leiðsögn frá honum og það var samþykkt.
-
Jóhanna
9 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Þú ert nú alltaf merkilegust í okkar huga !!!
Hvenær ætlið þið að vera á Íslandi?
Sagði Brynhildur — 14 Feb 2006 @ 7:12
Ekki gera lítið úr þessu, þú ert bara mjög merkileg finnst mér! Mikill heiður að leiðbeinandinn þinn skuli biðja þig að gera þetta.
Sagði Guðlaug — 14 Feb 2006 @ 7:55
Takk stulkur minar. Vid verdum a Islandi 1.-8. juli. Jeij!
Sagði Johanna — 14 Feb 2006 @ 10:59
Tek undir með Guðlaugu. Ekki gera lítið úr þér. Gott að vera búin að fá dagsetningu á fríið.
Bless Mamma..
Sagði mamma — 14 Feb 2006 @ 11:33
Ég bíð bara eftir að sjá viðtal við þig á National Geographic eða eitthvað álíka! Nennirðu samt að þekkja mig þegar þú verður orðin frægur vísindamaður!?!
Sagði Tóta — 14 Feb 2006 @ 2:24
Þú ættir að segja í styrkumsókninni að það megi nota rannsóknir þínar til að búa til rosa stóra sprengju, þá færðu pottþétt styrk!
Sagði Henning — 14 Feb 2006 @ 6:46
Vá. Þú er mjög kúl.
Sagði Erling — 14 Feb 2006 @ 7:05
Tóta mín, ég vil alltaf þekkja þig og hlakka til að hitta þig í sumar. Við hittumst örugglega, er það ekki?
Henning, ég held að útlendingar fái aldrei styrk til að búa til sprengju, eða hvað?
Sagði Jóhanna — 14 Feb 2006 @ 11:05
Jess - var farin að hafa pínu áhyggjur af þessu;) Og jú jú, að sjálfsögðu hittumst við í sumar - ég geri ráð fyrir að vera bara heima í fjörinu.
Sagði Tóta — 15 Feb 2006 @ 4:55