Febrúar, 2006

1 vika! - 27 Feb 2006

Höldum niðurtalningunni áfram, nú er ein vika í vorfríið langþráða. Síðasta vika var eins og við var að búast, nóg að gera. Grantinn verður svo sendur inn á morgun, svo nú er bara verið að laga stafsetningavillur og orðalag. Gattaca stóðst prófið og ég náði að klára analýsuna á 15 klst, þvílíkt þægilegt að hafa svona margar tölvur.

Á morgun eru heimadæmaskil og miðsvetrarpróf, á miðvikudaginn eru heimadæmaskil, á fimmtudaginn er lokapróf og tvenn heimadæmaskil á föstudag, síðan vorfrí!

Palli er orðinn hress og kátur. Ég skildi hann eftir einan heima á laugardagskvöldið á meðan ég skellti mér í bíó og út að borða með nokkrum af Statgen stelpunum.


7 svör
Þú hefur breyst, þetta’ er engin mynd - 23 Feb 2006

Púff, meiri veikindi. Vaknaði með hálsbólgu í gær ofan á allt saman. Ég er með svo stíflað nef að það mætti halda að ég væri í stóriðjuframkvæmdum. Ég lét þetta hins vegar ekki á mig fá og kláraði nýju uppfærsluna á síðunni.

Það helsta sem breyttist var: litaþemað, stærra letur á greinum, dálkurinn færist til hægri og nokkur smærri atriði. Ef það er eitthvað sem virkar ekki, meikar ekki sens eða kemur ekki vel út í uppáhalds vafranum ykkar þá er bara að láta vita í svarhalanum.

PS. Bónusstig fyrir að botna fyrirsögnina.


5 svör
Veikindi, slen og Ólympíuleikar - 21 Feb 2006

Bjakk. Lá gjörsamlega fyrir á sunnudaginn og hef verið að ná mér hægt og rólega síðastliðna daga. Þetta er líka hrikalega góð tímasetning til að verða veikur því Vetrarólympíuleikarnir eru að gera allt vitlaust í kanasjónvarpinu.

Ólympíuleikar, af hvaða tagi sem er, eru eitt alversta sjónvarpsefni sem fyrirfinnst í Bandaríkjunum. Ég hef mjög gaman af að fylgjast með leikunum í íslensku sjónvarpi þar sem íþróttafréttamenn og -konur eru nákvæmlega það. NBC sér um leikana hér og lítur á þá sem raunveruleikasápuóperu.

Þulirnir (sem varla geta kallast íþróttafréttamenn) þylja upp hartnæmar sögur af íþróttafólki sem missti þrjá fingur í skíðaslysi, fengu fjögur krabbamein og héldu að þau myndu aldrei stíga á skíði framar en eru nú komin í úrslit. Ég er ekki að segja að þetta meigi alls ekki en það má stilla þessu í hóf. Þetta er eins og RÚV myndi reka Samúel Örn og láta Rósu Ingólfs sjá um allar lýsingar frá leikunum.

Það versta er auðvitað að ekkert annað er á NBC á meðan sem þýðir að ég þarf að bíða fram í miðjan mars eftir næsta West Wing þætti.


6 svör
Krossa fingur! - 21 Feb 2006

Búið að vera svolítið mikið stress á mér núna. Er að keyra simulation analýsu fyrir styrkumsóknina, en þar sem að Gattaca krassaði í seinustu viku hefur það nú gengið frekar hægt. Er að nota stúdenta-clusterinn núna með aðeins 4 processurum. Gattaca er komin aftur upp, en er samt eitthvað óstöðug, svo ég ein fékk aðgang og þar með aðgang að 250 processurum. Vona að hún haldist uppi í 24 klst, svo ég fái niðurstöðurnar og geti andað örlítið léttar Það að ég sé bara ein með aðgang þýðir samt að ef kerfið hrynur þá er það mér að kenna!

Annars er frekar leiðinlegt að gera svona simulation, því að þó enginn taki mark á niðurstöðunum þegar styrkumsóknin er skoðuð verður maður að gera þetta til að sýna maður hafi hugsað um hvort gögnin manns séu nógu góð til að svara þeim spurning sem við viljum svara með styrknum.


4 svör
2 vikur - 19 Feb 2006

Eftir tvær vikur byrjar vorfríið. Mikið hlakka ég til. Þessar tvær vikur verða hins vegar ansi strembnar, er að drukkna í verkefnum þessa dagana. Er “bara” að taka 9 einingar í kúrsum en þeir eru bara eins og 15, ekki það að námsefnið sé eitthvað svakalegt heldur eru bara endalaus heimadæmi, sem taka allt of langan tíma. Endaði á því að skila dæmum á föstudaginn án þess að klára, samt eyddi ég 15 klukkumtímum í þau.

Svo þurftum við endilega að uppgötva smá villu í simulation analysunni fyrir styrkumsóknina. Reyndar eru réttu niðurstöðurnar betri fyrir okkur :-) en þetta er samt dálítið stressandi.

Planið er að gera ekki neitt í vorfríinu, nema review-a pappírinn. Því JAMA vill fá hann aftur 15. mars.

Palli minn er lasarus, beinverkir og vesen. Vona bara að þetta verði ekki mjög slæm flensa.


2 svör
Flugmiðarnir komnir - 16 Feb 2006

Búinn að bóka flugið fyrir sumarið. Planið er að fljúga til London í gegnum Ísland, þaðan til Trieste, keyra til Króatíu og stoppa í viku á Íslandi á leiðinni til baka. Þannig að við verðum á landinu 1. til 8. júlí í sumar.

Hrafnarnir komu ekki síðustu nótt, gott fyrir svefninn og bílinn okkar. Einum bíl var lagt undir trénu fyrir utan og hann var nánast hvítur eftir að krummarnir tóku hann í gegn. Sem betur fer rigndi síðustu nótt svo að það mesta skolaðist burt.


3 svör
Hrafnaþing - 15 Feb 2006

Heljarinnar hrafnaþing hefur verið haldið í trjánum á bílastæðinu og fyrir utan svefnherbergisgluggann hjá okkur undanfarnar nætur. Þvílíkt garg og skítur, það eru örugglega 1000 krummar hérna fyrir utan á nóttunni og lítið er sofið. Þannig við sofnum á miðnætti, vöknum klukkan 4 við gargið og sofnum aftur klukkan átta. Hef bara aldrei séð svona mikið af hröfnum og leigusalinn á fullt í fangi með að þrífa skítinn af bílastæðinu.


Eitt svar
Eitthvað til að hlakka til - 13 Feb 2006

Nú er loksins búið að ákveða dagana fyrir doktorsprófsprófin, svona próf til athuga hvort maður kunni nóg til að klára doktorsnámið, deildin vill ekkert vera að borga fyrir mann skólagjöldin ef maður kemur svo ekki til með að klára námið! Og þar sem búið er að ákveða þessa blessuðu prófdaga, getum við Palli loksins keypt flugmiðann til Króatíu, Austurríkis og Íslands.

Ég byrja svo á nýjum grant í lok júní, það er að segja ég mun fá launin mín frá öðrum granti. Þetta verður líklega tímabundið eða þar til búið er fá peninga til að halda augnsjúkdómaverkefninu áfram. Við vonum bara að okkur takist að fá peninga í fyrstu umsókn. Núverandi ríkisstjórn Bandaríkjanna er ekkert að dæla peningum í rannsóknir! Í nýja verkefninu mun ég forrita mikið, ef ég vil get ég notað tækifærið og lært að forrita í C og Python, eða einbeitt mér að R partinum.

Nú er maður orðin merkilegur, var að fá beiðni um að review-a rannsóknagrein. Get ekki sagt neitt meir um það enda allt saman trúnaðarmál. Nei, annars er ég ekki svo merkileg, leiðbeinandinn minn fékk beiðnina og hann spurði journalinn hvort ég mætti ekki gera það með leiðsögn frá honum og það var samþykkt.


9 svör
Superbowl Myndir - 06 Feb 2006

Superbowl: Steelers skreytingar, handklæðið ógurlega og óeirðir í Oakland (42 myndir)


7 svör
Einn fyrir þumalinn - 06 Feb 2006

Nú er mikil gleði í Pittsburgh, Steelers voru að vinna Ofurskálina í 5 skiptið af 6 skiptum sem þeir hafa komist í Superbowl. Þeir sigruðu Seattle Seahawks örugglega, 21-10. Þegar lið sigrar fær það líka sigurhring, og núna þegar þeir hafa sigrað í fimmta skipti eru menn loksins búnir fá einn hring á þumalinn, loksins segi ég því að síðast unnu Steelers 1979. Annars var leikurinn ekkert spes, mikið af mistökum hjá báðum liðum, en nokkrir flottir taktar, sem skiluðu Steelers verðskulduðum sigri.

Við fórum inn í Oakland eftir leikinn, þar sem University of Pittsburgh er. Þar var búið að loka Forbes Avenue og mikil fagnarlæti í gangi. Fólk öskrandi, syngjandi Steelers lagið, veifandi hrikalega handklæðinu. Bílstjórar lágu á flautunni, menn kveiktu í sófasettum og skutu upp flugeldum. Það er sem sagt meira fjör í Pittsburgh núna heldur en nokkur áramót og meira skreytt í Steelers litunum heldur en skreytt er á jólunum.


3 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527