- Gleði í Pittsburgh - 15 Jan 2006
-
Okkar menn voru að vinna, 21-18, eftir æsispennandi leik. Með smá-óheppni fengu Colts tækifæri til að jafna á lokamínútu leiksins en klúðruðu tækifærinu og Steelers fögnuðu sigri. Maður leiksins var auðvitað Big-Ben.
Þetta var sjónvarpsdagur, fyrst horfðum við á leikinn, sem var 3 klst, og nú bíðum við eftir að fyrstu tveir þættirnar af 24 verði frumsýndir.
-
Jóhanna
7 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Vá hvað ég væri til í að vera í Pittsburgh núna. Ég veit og skil þetta æði í kringum fótboltann þó ég hafi ekki náð nema smá hluta af tímabilinu. Leikurinn var ekki sýndur hérna á klakanum (skandall) en ég sat fyrir framan tölvuna og horfði á leikinn á leikvarpi!!!! Ég er viss um að Sýnar-menn sjái eftir að hafa breytt um leik. Síðan þarf bara að taka Denver og sækja síðan Ofurskálina!!! Bestu kveðjur til allra í Pittsburgh.
Mummi
Sagði Mummi — 16 Jan 2006 @ 5:13
Já, það er alveg ótrúlegt að fylgjast með þessu fótboltabrjálæði og þetta verður örugglega einn af frægari payoff leikjunum. Big-Ben er orðinn frægur um öll Bandaríkin fyrir þennan leik.
Það er eiginlega leiðinlegast að þeir hafa ekkert spilað á heimavelli.
Sagði Jóhanna — 16 Jan 2006 @ 11:42
hvað er payoff leikur???
Sagði Gréta — 16 Jan 2006 @ 6:32
Þetta á reyndar að vera playoff (smá innsláttarvilla)
Fyrst keppa lið um að komast inn í meistarakeppnina, og síðan taka við tvær play-off keppnir, annars vegar vesturhluti USA og hinsvegar austurhlutinn. Þau lið sem vinna í þessum tveimur keppnum komast í Superbowl, sem er keppni um fyrsta sætið yfir öll Bandaríkin.
Palli, er þetta ekki nokkurn veginn rétt hjá mér?
Þetta er risastór keppni, til dæmis munu Rolling Stones spila í hálfleik.
Sagði Jóhanna — 16 Jan 2006 @ 7:20
Tveir hlutarnir eru NFC og AFC. Upphaflega voru til tvær deildir, NFL og AFL, en þær sameinuðust í NFL árið 1970. Liðin í þáverandi NFL spila í NFC og hin í AFC.
AFC lið spila bara við önnur AFC lið o.s.frv., síðan mætast sigurvegararnir úr deildunum í Superbowl. (sjá http://en.wikipedia.org/wiki/Nfl )
Sagði Palli — 16 Jan 2006 @ 7:32
Bara til að íslenskir lesendur geti fylgst með:
15 degrees Fahrenheit = -9.44444444 degrees Celsius
Sagði Erling — 18 Jan 2006 @ 10:48
Erling, ef að hitinn er 15°F yfir meðaltali þá eru það 8.3°C yfir meðaltali. Núllið er ekki á sama stað svo að það þarf ekki að hliðra þegar maður talar um breytingar í hitastigi.
Sagði Palli — 18 Jan 2006 @ 2:11