Janúar, 2006

Pönnsur - 29 Jan 2006

Gerði pönnukökur í annað skipti áðan og nú voru þær þunnar og góðar. Boðið var upp á sykur, nutella, íslenska rabbabarasultu frá Birnu og Jóni og rifsberjagel frá Björgu, með. Mmm!

Í gær sagði mamma mér frá hugmynd Bjarkar, frænku minnar, og Einars um Hornstrandaferð næsta sumar og nú hugsa ég ekki um annað, það væri æðislegt að fara. Strandir gefa mér orku í tvö ár, og það væri ekki amalegt að fá smá aukaorku og klára svo doktorsnámið á 4 árum í kjölfarið, fór nefnilega ekki í fyrra og yrði helst að fara núna …


5 svör
Góður sigur - 22 Jan 2006

Nú eru Steelers AFC meistarar og á leið í Superbowl eftir 2 vikur. Þeir sigurðu Broncos örugglega með 34 stigum gegn 17. Þetta var glæsilegur sigur og eru Steelers fyrsta liðið í 20 ár til að vinna 3 playoff leiki í röð, ekki heimavelli.

Við fórum til David og Tessu að horfa á leikinn, sem betur fer því að það varð rafmagnslaust í blokkinni okkar í miðjum leik og er það ekki enn komið á. Á leiðinni heim var allt brjálað á götunum, bílar flautandi, fólk veifandi “the terrible towel” og hoppandi og öskrandi af kæti. Það er alveg ótrúlega gaman að fylgjast með þessu fótboltabrjálæði, en það er víst hvergi meira en í Pittsburgh. Það segir ansi mikið að “íþróttaáhugamanneskjan” ég skuli dragast inn í þetta. Í fyrsta skipti sem ég fór í gegnum vegabréfa- og innflytjendaeftirlitið og sagði verðinum að ég væri á leið til Pittsburgh í fjögur til fimm ár, sagði hann “you better become a football fan”, og það er svo sannarlega ekki hjá því komist í þessari borg.

Það er a.m.k. pottþétt að við kaupum okkur hrikalega handklæðið fyrir úrslitaleikinn.


10 svör
Gleði í Pittsburgh - 15 Jan 2006

Okkar menn voru að vinna, 21-18, eftir æsispennandi leik. Með smá-óheppni fengu Colts tækifæri til að jafna á lokamínútu leiksins en klúðruðu tækifærinu og Steelers fögnuðu sigri. Maður leiksins var auðvitað Big-Ben.

Þetta var sjónvarpsdagur, fyrst horfðum við á leikinn, sem var 3 klst, og nú bíðum við eftir að fyrstu tveir þættirnar af 24 verði frumsýndir.


7 svör
Spenna og veður - 13 Jan 2006

Nú er mikil spenna í Pittsburgh, það er næstum skylda að klæðast í svart og gult, en það eru Steelers litirnir. Það kemst ekkert annað að í fréttum á svæðinu nema veðrið en að undanförnu hefur hitinn verið 15°F yfir meðaltali í janúar. Hitinn á samt að lækka í kvöld niður að frostmarki, brr!

Á sunnudaginn keppa Steelers við Indianapolis Colts, sem sagðir eru eitt besta liðið í ár. Leikurinn verður á heimavelli Colts, og þeir tóku enga miða frá fyrir Steelers aðáendur, taka ekki við símtölum frá Vestur PA og bannað er að áframselja miðann sinn til stuðningsmanna Steelers. Hins vegar eiga Steelers aðdáendur í hverri borg, svo það voru einhverjir sem komust framhjá kerfinu … .

Skólinn er byrjaður á fullu hjá mér, ég er bara í 9 einingum núna (reyndar fjórum kúrsum) og er ekki í neinum tímum á mánudögum. Núna er ég bara að vinna í grantinum og var svo rétt í þessu að fá ný gögn sem þarf að analysa og birta fyrir 1. mars, þetta er sem betur fer bara case/control göng en það er miklu auðveldara heldur en linkage gögn.


2 svör
Go Steelers! - 08 Jan 2006

Pittsburgh Steelers voru að vinna Cincinnati Bengals, 31-17. Þeir byrjuðu reyndar illa eins og oft áður en sýna svo hvað þeir geta þegar þeir eru búnir að þreyta andstæðingana. Því miður munu þeir samt ekki spila á heimavelli það sem eftir er leiktímabilsins, við vonum bara að þeir komist til Detroit - í Superbowl.

Annars, gerði ég pönnukökur í fyrsta skipti áðan, þær voru heldur þykkar en verða betri næst!


4 svör
Myndir - Jólaheimsókn - 06 Jan 2006

Jólaheimsókn: Nokkrar myndir úr jólaheimsókn (15 myndir)


6 svör
Myndir - Hóll - 02 Jan 2006

Hóll: Stutt ferð að Hóli (4 myndir)


5 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527