- Til hamingju! - 31 Des 2005
-
Til hamingju með afmælið elsku Gréta, frá öllum í Pittsburgh.
-
Eitt svar
Desember, 2005
- Gleðilega hátíð - 24 Des 2005
-
Knús, frá okkur í Pittsburgh, til fjölskyldu og vina vítt og breitt um heiminn ;-)
-
6 svör
- Jólakveðja - 23 Des 2005
-
Fjölskyldan við Bayard Rd. sendir forstjórum og starfsmönnum Actavis og KB Banka hugheilar jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir góða afkomu árinu sem er að líða og von um gott gengi á komandi ári.
Lifið heil!
-
2 svör
- Horn - 23 Des 2005
-
Já, finnst ykkur ekki gaman að fylgjast með jólaundibúningnum, bakaði sem sagt skinkuhorn áðan. Uppskrift frá Grétu systur, sem gerir bestu kanilsnúðana og skinkuhornin ;-) Svo kom sófaáklæðið úr hreinsun áðan, nú á nokkurn veginn bara eftir að taka eldhúsið í gegn. Mín hefur bara sýnt ágæta takta í húsmóðurhlut- verkinu undanfarna viku en að sama skapi ekki afkastað miklu í vinnunni :-(
-
Eitt svar
- Jólaís - 21 Des 2005
-
Gerði jólaísinn í gærkvöldi, Palli þeytti eggjahvítur og saxaði súkkulaði. Vonum að hann hafi heppnast vel, gerði nefnilega tvöflat stærri skammt en í fyrra, enda erum við að fá gesti. Annars var þetta nú mun minnna verk en í fyrra því nú eigum við hrærivél og þeytara og hægt að gera margt í einu …
-
3 svör
- Jólagjafir - 20 Des 2005
-
Þessi jólin, gerðist það í fyrsta skipti í okkar sambúð, að Palli var búinn að kaupa mína gjöf áður en ég var búin að kaupa hans. Ég kláraði mitt verk í dag, skelltum okkur í mollið, ég sendi Palla í Sears og fór svo í aðrar búðir í mollinu.
Á morgun mun ég hins vegar mæta í vinnuna!
-
6 svör
- Afslappelsi - 18 Des 2005
-
Mikið getur verið gott að gera ekki neitt - hanga bara of horfa út í loftið - án þessa að vera með samviskubit.
-
11 svör
- Allt bú! - 15 Des 2005
-
Jamm, kláraði prófatörnina áðan. Búin að fá út úr Linear Models, B+, það er þá fyrsta B-an mín í GSPH. Þannig er það nú bara, einhvern tímann er allt fyrst, svo sagði kennarinn líka að þeir sem fengu B+ og hærra séu í fínum málum (a.m.k. ekki vondum málum) fyrir preliminaries, næsta sumar - svo það er gott!
-
7 svör
- Utan við sig - 14 Des 2005
-
Jamm, það er best að vera utan við sig. Fór sem sagt heim úr skólanum á þeim forsendum að dótið sem ég þarf (þar með talið prófið sjálft) fyrir heimaprófið sem á að skila á morgun, væri heima í stofu, síðan er það bara ekki heima heldur í skólanum - við skulum a.m.k vona það því klukkan er orðin 7.20 PM og maður ekki byrjaður á þessu.
Palli er núna að klára að fara yfir próf upp í CMU og ætlar svo að skutla mér í skólann að ná í dótið, síðan ætlum við að fá okkur eitthvað ljúffengt að borða á Craig St. og halda svo upp í CMU svo ég geti gert verkefnið, þarf nefnilega að nota hið frábæra tölfræði forrit SAS sem ég hef ekki heima.
Annars gekk Multivariate prófið bara ágætlega og ég held fyrirlesturinn líka ;-)
-
2 svör
- 3 eftir! - 13 Des 2005
-
Nú á ég bara eftir, Multivariate analysis prófið á morgun, fyrirlestur í Linkage analysis á morgun og skila heimaprófi í Estimation theory á fimmtdaginn. Það gekk bara ágætlega í Estimation Theory prófinu í gær en ekki meir en skítsæmó í Linear models sem var í dag.
Síðan verður allt á fullu að vinna í grantinum því að hann var ekki einu sinni skoðaður, sökum þess að þeir hjá bandarísku heilbrigðisstofnunni gáfu rangar upplýsingar um umsóknarfrest til okkar - þeir viðurkenna meira að segja að þeir hafi gert það en segja bara að það hafi verið mistök. Frekar fúlt, en svona er skriffinnskan bara rugluð hér í USA! Það þarf að senda hann aftur inn fyrir 1. mars 2006, og þá þarf að bæta hann, helst að fá annan pappír birtan fyrir 1. mars svo hægt sé að bæta því inn í “acheivements” kaflann.
-
2 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
