Nóvember, 2005

Fréttaskot - 19 Nóv 2005

Þá er jólagjafainnkaupunum nokkurn veginn lokið. Jóhanna kláraði þau í morgun í gegnum netið, mjög svo þægilegt að hafa lokið því.

Ég var annars að átta mig á því hvað ég er að verða gamall. Eftir næstu áramót verð ég 26 ára, ég endurtek tuttuguogsex ára! En það sem verra er að næsta vor hef ég setið á skólabekk í 20 ár samfleytt, það er kannski ótrúlegt að ég sé ekki kominn með andleg legusár eftir það.

Svo á miðvikudagsmorgun þá höldum við til Seattle og höfum það náðugt yfir þakkargjörðarhátíðina.

Ef einhvern vantar hugmyndir fyrir jólagjöf handa mér þá væri þetta vel þegið.


5 svör
Ofurhúsmóðir? - 18 Nóv 2005

Nei, ekki alveg. Nýja ryksugan er samt komin í hús og núna er barasta pínu gaman að ryksuga.


8 svör
Afmæli! - 16 Nóv 2005

Orri frændi Pallla er 10 ára í dag og sendum við innilegar hamingjuóskir frá Bandaríkjunum ;-)


Eitt svar
Ekkert að frétta! - 09 Nóv 2005

Jamm, það er ekkert í fréttum … Er að vinna fáránlega mikið núna en það “endar” nú væntanlega á mánudaginn því þá verður styrkumsókninni skilað inn, en ég er búin að vera gera “simulation analysis” fyrir umsóknina. Ég er búin að vera að keyra brjálæðislega mikið af analysu og þökk sé Gattaca þá tekur það sem ég er að gera ekki 50+ daga heldar 2 sólarhringa.


7 svör
Seattle - 01 Nóv 2005

Við erum búin að kaupa okkur miða til Seattle um Thanksgiving, förum af stað eldsnemma á miðvikudagsmorgni 23. nóvember og komum aftur til Pittsburgh á mánudeginum … Gaman, gaman!


5 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527