Október, 2005

Frá SLC - 29 Okt 2005

Nú er skrifað frá Salt Lake City, Utah. Allt er gott af okkur, við ákváðum að splæsa á okkur nettengingu inn á hótelherbergið síðasta sólarhringinn hér svo að við gætum eitthvað unnið!

Fyrirlesturinn gekk bara vel þrátt fyrir mikið stress, en ég var búin að æfa mig mjög mikið svo það skilaði sér. Hitti svo slatta af Íslendingum, þeir eru alls staðar, þarna var meðal annars hópur frá Íslenskri erfðagreiningu sem er að rannsaka sama sjúkdóm.

Í gærkvöldi voru þrír fyrirlestrar undir yfirskriftinni “Genetics in the Public Eye”. Þar talaði dómari og teiknimyndasöguhöfundur og síðast en ekki síst kona sem er yfir samtökum sem berjast gegn því að “Intelligent Design” verði skipt út fyrir vísindakennslu í grunnskólum, það er skemmst frá því að segja að fólk æstist upp og var mikið klappað og menn virðast staðráðnir í að berjast enn frekar gegn forsetanum og stefnu hans.


5 svör
Á morgun … - 24 Okt 2005

höldum við Palli til Salt Lake City, gaman gaman og mikið stress. Var í prófi í morgun og gekk bara mjög illa, eiginlega fyrsta prófið sem mér gengur verulega illa í hér í Pittsburgh. Ástæðan er nú væntanlega sú að mér gekk ekkert of vel að læra og ég þurfti þar að auki að taka prófið í morgun, ein inni á skrifstofu hjá kennaranum, frekar pirrandi. Prófið var lokuð bók og allt, en það finnst mér frekar asnalegt, held bara að kennurum finnist auðveldara að semja svoleiðis próf því þá er hægt að spyrja um minnisatriði sem skipta bara nákvæmlega engu máli upp á skilning, sem ég hélt að málið snerist nú allt um - a.m.k. í doktorsnámi.

Annars er ég að taka fullan einingakvóta og var nú bara að komast að því að það er eitthvað sem ekki er talið gerlegt, ég tala nú ekki um þegar maður er GSR líka. Engum dettur í hug að láta mann vita.


9 svör
Nú verða sagðar fréttir - 16 Okt 2005

Nú styttist óðum í níu daga samfleytt ráðstefnuhald. Stuðið hefst næsta föstudag með FriezeFest sem er samansafn af fyrirlestrum til heiðurs Alans Frieze, prófessors í stærðfræðideildinni hérna, en hann er einmitt að verða sextugur kallinn. Í beinu framhaldi verður svo FOCS (Foundations of Computer Science) sem er haldið í Pittsburgh þetta árið. Ég mun hjálpa til við innritun svo að ég þarf ekkert að borga skráningargjald og þ.a.l. ekki að verða mér úti um pening til að fara á ráðstefnuna. FOCS er frá laugardegi til þriðjudags, ég missi reyndar af síðasta deginum því þá förum ég og Jóhanna til Salt Lake City á Annual Meeting hjá American Society of Human Genetics. Jóhanna er með fyrirlestur á fimmtudeginum en það þykir massaflott því það eru bara 280 fyrirlestrar, 1400 veggspjöld og hátt í 4þús manns skráðir. Við sáum að deCODE er með bás á sýningunni og nokkra pappíra (veggspjöld, ekki fyrirlestra nota bene) og slatta af fólki skráð. Við komum síðan heim á sunnudeginum eftir ráðstefnuna. Jóhanna fær flugið sitt og meirihlutann af hótelinu borgað frá deildinni svo að þetta verður ódýrt frí fyrir okkur :)

Síðustu daga hef ég haltrað um eftir að hafa misstigið mig hryllilega í stiga á miðvikudaginn síðasta. Ég var á fleygiferð niður þegar ég ruglaðist eitthvað og steig með 63kg sinnum -9.81 m/s2 krafti niður ytri hliðina á ilinni á vinstri löpp. Þetta fór auðvitað ekki vel í liðbandið og ég stokkbólgnaði eins og ég veit ekki hvað. Bólgan hefur þó minnkað nokkuð og ég er allur blár og marinn eftir þetta. Góðu fréttirnar eru þær að ég er ekki með ofnæmi fyrir íbúfeni eða íbúprófeni í BNA.

Af öllu því sjónvarpsefni sem sýnt er í opinni dagskrá í BNA eru þrír þættir sem eru þess virði að fylgjast með.

  • West Wing : klassískt efni sem ég veit ekki alveg hvert er að fara í ár, en það verður spennandi að sjá
  • Desperate Housewives : önnur serían fer ekki alveg jafnvel af stað og sú fyrri, vantar aðeins að koma sér að efninu
  • Arrested Development : fyndnustu þættir í heimi, algjört möst að horfa á fyrstu tvær seríurnar

Í síðasta þætti úr Arrested Development var lögfræðingur sem hét Bob Loblaw, þetta er ekki fyndið nafn á prenti en reynið að bera það fram og grínið kemur í ljós. Dr. Thobias Fünke er einn af fyndnari persónum í þættinum, hann hafði starfað sem Analyst og Therapist og ákvað að sameina starfsgreinarnar, þið getið rétt ímyndað ykkur hvað hann setti á nafnspjaldið sitt. Í stuttu máli sagt, hlaupið út í næstu búð og náið í þessa þætti.


4 svör
Allt brjálað - 12 Okt 2005

Já, ég er að drukkna í verkefnum sem öll þurfa að klárast (helst í gær!) sem fyrst. Það verður því ekki mikið um blogg frá mér næstu 3 vikum og þá verður það væntanlega smá brúðkaupssaga og myndasýning.


3 svör
Mjólk og mjólkurvörur - 10 Okt 2005

Eins og Íslendingar vita er íslenska mjólkin sú besta í heimi. Við Palli töldum okkur hins vegar hafa fundið ágætismjólk, a.m.k. út á morgunkornið en gerðum okkur engar vonir um að við fyndum mjólk sem hægt væri að drekka. Í þau fáu skipti sem við höfum keypt rjóma höfum við keypt frá Organic Valley, sem fæst í Whole Foods, og hefur fundist hann ljómandi góður. Það var því ákveðið að prófa aðrar vörur frá þeim og viti menn mjólkin er bara góð, kotsælan er betri en sú íslenska og sýrði rjóminn líka mjög góður. Við vorum því hálffúl yfir að hafa ekki uppgötvað þetta fyrr en ár er liðið af dvöl okkar hér.


4 svör
Haustið komið - 09 Okt 2005

Já haustið kom í fyrradag, á einni nóttu féll hitinn úr 28°C í 13°C, á morgun á hitinn samt að fara upp í 20°C og haldast þannig fram í næstu viku. Okkur fannst 13°C samt ekkert slæmt, maður þurfti bara að vera í jakka líka. Ég held samt að infæddum finnist veturinn bara kominn, í gær þegar við vorum að labba heim úr skólanum er hrópað á okkur úr bíl “How about this weather”, maður er sem sagt eitthvað klikk að labba í þessum “kulda” og þar að auki var smá rigningarúði.


Engin svör
Bourne Identity - 08 Okt 2005

Við Palli horfðum á þessa mynd í gærkvöldi. Hún var bara ágæt, hún gerði ekkert af því sem ég þoli ekki við hasarmyndir, fyrir það eitt gæti ég sagt að hún væri frábær! Flestar senurnar voru mjög góðar nema þegar Matt Damon stekkur niður stigaganginn og notar lík til að lenda á. Mér fannst ekki nógu mikið gert í því að vera inni á hausnum á honum (mér er reyndar sagt að hugsanir hans komi betur fram í bókinni), því að á fyrstu tveim mínútum myndarinnar er áhorfandinn búinn að fatta allt en aðalpersónan ekki og það er bara pirrandi. Þessi mynd, eins og svo margar aðrar, var hins vegar allt of löng miðað við hvað gerðist lítið í henni.

Fórum út að borða á japanskan stað ásamt nokkrum úr stærðfræðinni í gærkvöldi. Við fengum alveg hrikalega gott sushi. Í dag er það hins vegar lærdómur, ég ætla að fara að vekja Palla til að fara í skólann, mig langar nefnilega að eiga frí í eftirmiðdaginn til að gera eitthvað ljúft … eins og að skoða föt.

Nú styttist óðum í ráðstefnuna, en ég á samt eftir að gera 3 heimadæmi og fara í 4 miðsvetrarpróf áður.


Engin svör
Steinn - Skæri - Blað - 07 Okt 2005

Er alltof einfaldur leikur, mæli með að menn kynni sér RPS-25 með 22 nýjum handahreyfingum. Nú eru bara 4% líkur á jafntefli en það þarf víst að læra útskýringar á 300 niðurstöðum.

Það er hins vegar greinilegt að sumir taka þennan leik einum of alvarlega og að aðrir ættu alls ekki að leika hann.


2 svör
Afmæli - 05 Okt 2005

Haffi átti afmæli í gær og Brynhildur á afmæli á morgun. Innilega til hamingju.

Fyrir þá sem ekki þekkja til voru það þau sem sáu um tónlistina, sem heppnaðist alveg frábærlega, í brúðkaupsveislunni okkar. 1000 þakkir ;-)


5 svör
Allt á fullu - 03 Okt 2005

… og ég get ekki einbeitt mér!

Það skemmtilegasta sem er framundan hjá mér núna er að kaupa mér dress fyrir ráðstefnuna ;-) Ótrúlega gaman að hafa góða afsökun til að leyfa sér að kaupa sér föt (og meira en bara bol!)

Annars keypti ég mér svartar flauelsbuxur í Banana Republic og svartan haustjakka í J-Crew, bæði á útsölu á laugardaginn. En það var bara vegna þess að mig vantaði þetta, ekki mér til skemmtunar.


3 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527