September, 2005

Skyr, nammi namm - 15 Sep 2005

Nú á haustdögum er hægt að kaupa íslenskt lambalæri í Wholefoods fyrir slikk. Við keyptum tvö úrbeinuð lambalæri á sjö dollara pundið, rétt undir þúsundkalli á kílóið, íslenskan eldislax er svo hægt að fá allan ársins hring. En nú ætlar Heill Matur að selja íslenska osta, skyr og jafnvel súkkulaði. Ég staðfesti þetta í gær við ostakallinn, hann sagði að þeir hefðu pantað mikið úrval af íslenskum ostum og að þeir ættu að koma í næstu viku. Samt er ég mest spenntur fyrir skyrinu, ég vona bara að það sé alvöru stöff, ekkert svona ofurbragðbætt eins og skyr.is. Ekki myndi svo spilla fyrir ef Nói myndi herja á Bandaríkjamarkað. Það verður að segjast að hér virðast menn leggja meira upp úr magni en gæðum og klína hnetusmjöri á allt sem nammi kallast.

En úr einu í annað. Bandaríkin eru að liðast í sundur og er gífurlega hátt bensínverð besta dæmið um það. Gallonið kostar nú 2.89 hjá okkur sem er mun skárra en 3.19 þegar verst lét eða heilar 53 kr. á líterinn. Vonandi lækkar þetta nú aftur niður í 2.5 eins og það var um daginn.

Jahérna, mikið er maður orðinn mikill kani að kvarta og kveina yfir “háu” bensínverði. Kannski fái mér bara hvíta New Balance skó við nýju Levis gallabuxurnar mínar.


4 svör
Afmæli - 14 Sep 2005

Mamma mín, besta mamma í heimi, á afmæli í dag. Til hamingju með daginn!
Knús og kossar ;-)


3 svör
Myndir og ryksuga - 13 Sep 2005

Jæja er ekki kominn tími til að láta heyra aðeins frá sér. Við fórum með myndir úr brúðkaupsveislunni í framköllun um helgina og komu margar góðar og aðrar ekki eins góðar myndir. Við erum að vinna í því að setja saman seríu til að setja á netið, þetta eru bara svo margar myndir … ég er til að mynda bara búin að setja helminginn í albúm.

Það væri svo mjög vel þegið ef þeir sem tóku myndir í brúðkaupinu sendi okkur í tölvupósti eða pósti! Við vorum að reyna að giska á hvað hefðu eiginlega verið teknar margar myndir, þar sem flestir eru með “digital” eru menn nú yfirleitt ekkert að spara!

Úr einu í annað. Ég hata amerískar ryksugur og er okkar að gera mig brjálaða. Kannski eru þessar hnullustóru ryksugur ástæðan fyrir því að enginn annar virðist ryksuga í stigagangnum okkar (a.m.k hef ég aldrei heyrt nokkurn mann ryksuga og þessar ryksugur eru háværar). Mig langar helst í netta evrópska ryksugu, ísskáp (skil ekki fólk sem kaupir bandaríska ísskápa, þeir eru bara stórir en samt virðiðst ekkert pláss í þeim) og þvottavél. Eins og menn hafa eflaust gert sér grein fyrir var hreingerningadagur í gærkveldi og þá verð ég alltaf pirruð á þessu dóti … svo því ekki að blogga um það?

Annars er allt í þessu fína, við erum bara í skólanum og ég að reyna að komast aftur í rútínuna en það virðist ekki ganga neitt of vel. Síðan er veðrið frábært hérna þessa dagana, reyndar á að vera svolítið heitt í dag og fara upp fyrir 30 gráður en síðan við komum hefur hitinn yfir daginn verið svona kringum 25 og 15 á nóttunni og lítill raki, sem sagt alger draumur.


2 svör
Lu! - 03 Sep 2005

Jæja, er búin að borða næstum einn pakka (Palli fékk tvær kexkökur) af Lu súkkulaðikexi síðan í gærkvöldi. Ég held ég kíki ekkert á hitaeiningainnihaldið, þá mun ég bara fá einn meira samviskubit. Maður hefur nefnilega bætt á sig rúmum 2,5 kílónum á þessu ári hér í USA, með sama áframhaldi verð ég orðin 67 kíló að doktorsnámi loknu með 12 kílóum ofaukið á rassinum og ekki má hann við því!

Annars er ég búin að bóka flug og hótel í Salt Lake City í lok október og er bara orðin pínu spennt en samt hrikalega stressuð yfir þessu öllu saman. Palli kemur með og verður mér til halds og trausts.

Samkvæmt skipulaginu á næsti fundur bandarískra mannerfðafræðinga að vera árið 2006 í New Orleans … ímynda mér nú að það þurfi að velja nýja staðsetningu. Ástandið á þessum flóðasvæðum er vægast sagt hrikalegt, ótrúlegt að mönnum hafi tekist “stóráfallalaust” að skipuleggja hjálparstarf í Asíu en ráði svo ekki við New Orleans. Félag Public Health skóla virðist vera að gera meira en Bush og félagar; nú er félagið að dreifa nemendum frá hamfarasvæðum í aðra Public Health skóla í Bandaríkjunum og eigum við í Pittsburgh von á a.m.k tveimur nemendum.


4 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527