- Skyr, nammi namm - 15 Sep 2005
-
Nú á haustdögum er hægt að kaupa íslenskt lambalæri í Wholefoods fyrir slikk. Við keyptum tvö úrbeinuð lambalæri á sjö dollara pundið, rétt undir þúsundkalli á kílóið, íslenskan eldislax er svo hægt að fá allan ársins hring. En nú ætlar Heill Matur að selja íslenska osta, skyr og jafnvel súkkulaði. Ég staðfesti þetta í gær við ostakallinn, hann sagði að þeir hefðu pantað mikið úrval af íslenskum ostum og að þeir ættu að koma í næstu viku. Samt er ég mest spenntur fyrir skyrinu, ég vona bara að það sé alvöru stöff, ekkert svona ofurbragðbætt eins og skyr.is. Ekki myndi svo spilla fyrir ef Nói myndi herja á Bandaríkjamarkað. Það verður að segjast að hér virðast menn leggja meira upp úr magni en gæðum og klína hnetusmjöri á allt sem nammi kallast.
En úr einu í annað. Bandaríkin eru að liðast í sundur og er gífurlega hátt bensínverð besta dæmið um það. Gallonið kostar nú 2.89 hjá okkur sem er mun skárra en 3.19 þegar verst lét eða heilar 53 kr. á líterinn. Vonandi lækkar þetta nú aftur niður í 2.5 eins og það var um daginn.
Jahérna, mikið er maður orðinn mikill kani að kvarta og kveina yfir “háu” bensínverði. Kannski fái mér bara hvíta New Balance skó við nýju Levis gallabuxurnar mínar.
-
Palli
4 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Nú eru amerískir dagar í hagkaup og það er hægt að kaupa lítil ritzkex með hnetuskjöri á milli…fyndið og geðveikt stóra gadorate flösku. Ætlar Birna að koma með nike skóna mín og gönguskóna?
Sagði Gréta — 17 Sep 2005 @ 5:53
Jóhanna ef þú vilt kíkja á síðuna hjá litla krúttinu hennar Oddnýjar þá er þetta síðan http://www.barnaland.is/barn/28428.
Sagði Gréta — 18 Sep 2005 @ 1:02
hún er algjör rúsína … og þvílíkt hár ;-)
Sagði Johanna — 19 Sep 2005 @ 3:56
ég fór í heimsókn til Oddnýjar í dag og hún er svo mikil rúsína og með svo litla putta…algjört krútt
Sagði Gréta — 19 Sep 2005 @ 5:44