- Ekki neitt - 30 Sep 2005
-
Aldrei þessu vant er ekkert merkilegt í fréttum. Ákvað bara að stríða Palla aðeins og ýta honum út af síðunni. Það eru nefnilega bara birtir 10 pistlar á uppafssíðunni og nú er ég búin að skrifa 10 í röð og Palli dottinn út.
Annars heppnaðist maturinn bara ágætlega í gærkvöldi og var mikið gaman að hitta Boris aftur.
Whole Foods er aldrei þessu vant að gera góða hluti, nú getum við fengið íslenskt lambakjöt, lax (og studnum ýsu), vatn, osta og smjör.
-
6 svör
September, 2005
- Frábær heimsókn á enda - 29 Sep 2005
-
Birna og Jón eru farin, í augnablikinu sitja þau væntalega á flugvellinum í Pittsburgh og bíða eftir vélinni ti Boston. Það þarf ekki að taka það fram að þessi vika var afar ljúf. Þúsund þakkir!
Í gær fóru Birna og Jón á Carengie Museum og um kvöldið fórum við á Indian Gardens og fengum okkur ís á Dave/Andy´s. Við Palli fengum kærkomna gjöf frá þeim áðan - pening upp í almennilega ryksugu, jibbí.
Á eftir kemur Boris í heimsókn, og ætlum við að bjóða honum upp á íslenskt lambalæri (hvað annað!?). Best að fara að hætta og fara að fara í Whole Foods og klára að versla í matinn.
-
2 svör
- The Church Brew Works - 27 Sep 2005
-
Í gærkvöldi borðuðum við á The Church Brew Wroks en þetta er gömul kirkja sem búið er að breyta í brugghús, bar og veitingastað. Palli fékk sér “Pittsburgh salat” að vanda.
Birna og Jón skelltu sér í Ross Park Mall um daginn. Í dag held ég að þau ætli að kíkja á Walnut Street.
-
Engin svör
- Sunnudagurinn - 26 Sep 2005
-
Dagurinn í gær var eins og sunnudagar eiga að vera. Sátum lengi yfir morgunmat og frábærum pönnukökum og borðuðum allt of mikið (a.m.k. borðaði ég allt of mikið) fórum svo af stað um tvö leytið. Fórum upp í Cathedral of Learning og í Phipps, síðan var haldið heim og Palli, Jón og ég sofnuðm meðan Birna las. Síðan bökuðum við Palli pitsu og unnum svo pínu um kvöldið. Sem sagt mjög ljúfur dagur.
-
2 svör
- Falling Water - 24 Sep 2005
-
Fórum með Birnu og Jóni í Falling Water í dag og nú er íslenskur lambahryggur, kryddaður með íslensku blóðbergi frá Börmum og hvítlauk í ofninum - nammi namm! Falling Water er alltaf jafnmagnað, þetta var þriðja ferð okkar Palla þangað og er önnur ferð plönuð um jólin.
Hvað við gerum á morgun er óráðið, en líklega mun Jón víga nýju pönnukökupönnuna sem hann og Birna gáfu okkur og bjóða upp íslenskar pönnukökur (að vísu úr bandarísku hráefni, en það er gæðahráefni úr Whole Foods!) og ís í morgunmat.
Meira síðar!
-
2 svör
- Boston - 23 Sep 2005
-
Birna og Jón misstu af tengifluginu til Pittsburgh í gærkvöldi og gistu á Hilton á Logan flugvelli í Boston í nótt. Við eigum von á þeim á hádegi til Pittsburgh. Það er skondið, að nú veit ég bara ekki um neinn sem hefur náð Pittsburgh tengifluginu í Boston, ég missti af fluginu þegar ég fór að heimsækja Palla, mamma og Bryndís misstu af því þegar þær komu í febrúar og nú missa Birna og Jón af því. Skil ekkert í Flugleiðum að selja Keflavík-Pittsburgh í einum pakka, það er nefnilega þannig að ef maður kaupir miðann alla leið hjá Flugleiðum þá ábyrjast þeir að maður hafi nógan tíma til að ná næstu vél og ef svo er ekki þurfa þeir að borga fyrir mann hótel og flug næsta dag, rugl!
-
2 svör
- Svefn - 22 Sep 2005
-
Er búin að sofa frekar illa að undanförnu, vakna kl. 4 svo 5 svo 6 o.s.frv. Loksins í nótt svaf ég samfellt til 7 hvorki meira né minna, skreið svo fram úr klukkan 8 og dreif mig í skólann. Vonum nú að þessi góði svefn gefi mér orku til að gera allt sem ég hef ætlað að gera síðustu daga en ekki náð að klára, eða ekki náð að byrja á.
Það er búið að vera mikið að gera hjá Palla í að skrifa meðmæli, hann er bara orðin eins og alvöru prófessor. Þannig er að hann kenndi kúrs í sumar sem margir high-school nemendur tóku. Hann er nú búin að skrifa meðmæli fyrir tvo sem eru að fara að sækja um í college fyrir haustið 2006. Síðan var hann að auki beðinn um að skrifa meðmæli fyrir einn aðstoðarprófessorinn í CMU. Hann var í kúrsi hjá honum síðasta vor og vann svo í rannsóknaverkefni með honum yfir sumarið. Nú er þessi prófessor að fá áframhaldandi starfssamning hjá CMU og þá þarf yfirmennirnir hans að meta hvort þeir vilja hafa hann áfram. Palli er sem sagt orðinn sjóaður í að skrifa meðmælabréf, hann fékk meira að segja leiðbeingar frá einum af prófessurunum í stærðfræðideildinni hvernig á að setja svona bréf þannig þau einfaldlega virki.
-
Engin svör
- Næstum fræg - 21 Sep 2005
-
Í dag fékk ég skemmtilegan tölvupóst frá ASHG, skemmtilegri en flestir sem ég hef fengið undanfarið. Yfirleitt eru þeir að minna mann á að skrá sig á ráðstefnuna, bóka hótel, kaupa flug, setja saman fyrirlesturinn, kjósa nýjan formann o. s. frv., en í dag var mér tilkynnt að þeir hefðu valið “your wonderful work” til að vera hluta af fréttatilkynningu frá fundinum. Ég var því beðin um að lesa hana yfir og passa að það sem þeir hefðu sett saman úr abstraktinu mínu væri rétt.
Svo koma Birna og Jón á morgun svo ég ætla að fara að reyna að klára eitthvað af öllum þessum heimadæmum og verkefnum sem ég á að skila í næstu viku. Af hverju er það alltaf þannig að maður á að skila öllu á sama tíma og á tíma sem hentar engan veginn? Og Palli ætlar að laga til.
-
Engin svör
- Sæng - 21 Sep 2005
-
Í sumar var ekki hægt að sofa með sæng og ekki einu sinni lak, í byrjun september dugði að sofa með lak ef maður dældi inn kaldara næturlofti. Síðustu tvær nætur hefur hins vegar ekki verið nóg að sofa með lak, a.m.k ef maður dælir inn lofti yfir nóttina. Það er nefnilega alltaf of heitt til að vera með sæng um kvöldið en svo kólnar bara vel yfir nóttina og um 5 er maður bara að krókna. Hugsa að það sé komin tími til að setja sængur í sængurver … gaman eða hittó! Það var nú lúmkst þægilegt að þurfa ekki að taka utan af og setja utum sængur og kodda í hvert skipti sem rúmfötunum var skellt í þvottavél. Ég held mér finnist leiðinlegra að taka utan af sængum en ryksuga með amerísku ryksugunni okkar.
Jæja, best að skella sér í sturtu og drífa sig svo í skólann, klukkan orðin rúmlega átta.
-
2 svör
- Hjón í mánuð - 20 Sep 2005
-
Já, við Palli erum búin að vera hjón í mánuð … gaman að því. Spurning hvort við höldum upp á það, við höfum nú ekki verið mjög dugleg við að halda upp á svona afmæli hingað til.
Svo koma Birna og Jón á fimmtudaginn og verða í viku og erum við Palli orðin svaka spennt. Á fimmtudaginn eftir viku verður Boris í Pittsburgh og að sjálfsögðu erum við búin að bjóða honum í íslenskt lambalæri og fínerí. Í lok október er það Salt Lake City, um Thanksgiving í lok nóvember verður gert eitthvað skemmtilegt, kannski förum við til Seattle (ef við eigum fyrir því, þetta er ein mesta flughelgi ársins í USA svo fargjöld eru frekar há) og svo koma mamma og pabbi um jólin.
Það er sem sagt nóg að hlakka til.
Setti saman fyrstu drög að fyrirlestrinum mín um helgina, svona til að byrja aðeins að melta þetta. Hann á eflaust eftir að taka miklum breytingum þangað til í október.
-
3 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
