- Kjóll og heimferð - 10 Ágú 2005
-
Náði í brúðarkjólinn minn í gærkvöldi og fór í hann í síðasta sinn fyrir brúðkaup! Hef ekki hugmynd um hvernig ég á að pakka honum rétt, ætla nefnilega að taka hann með mér í handfarangur, vil nú ekki að verðir með skítuga hanska opni töskuna með honum í öryggiseftirlitinu.
Ótrúlegt hvað maður er þrútinn og asnalegur í þessum hita, síðast þegar ég fór í kjólamátun var toppurinn alveg þröngur og ég ætlaði varla að komast í skóna, sem NB voru aðeins of stórir á mig þegar ég keypti þá heima svo það var sett innlegg í þá, en núna (eftir að hafa verið inni í loftkælingu í allan dag og loftkældum bíl!) þá var kjóllinn bara ekkert þröngur, vonum að hann detti bara ekki niður um mig þegar ég kem heim. Ég tók nefnilega eftir því þegar við komum heim í júlí að fötin mín urðu öll víðari, frekar asnalegt!
Annars er það heimferð á morgun, dagurinn í dag fer því í það að ganga frá, borga alla reikninga, reyna að pakka og klára að prenta dagskrána … og helst klára eitthvað af analysunni sem ég byrjaði á í gær. Það tók mig bara 3 klukkutíma að fatta að ég hafði vistað R BATCH skrána, sem ég hafi forritað til að athuga samspil genotypu og reykinga, með Maca línuendingu en ekki Unix, svo þegar ég ætlaði að fara að keyra forritið í skelinni virkaði bara ekki neitt - pirrandi!
Fórum á Aladins í gærkvöldi, það var nú nauðsynlegt áður en komið er heim. Við höfum farið svo oft á þennan stað að brátt fer að líða að því að við verðum búin að prófa alla réttina á matseðlinum. Á eftir fórum við og sáum “The March of the Penquins” í bíóinu í Squirell Hill sem sýnir ekki ekta Hollywood myndir (svona bíó sem sýnir íslenskar myndir, í þau fáu skipti sem nýjar íslenskar myndir koma á markaðinn). Þetta var heimildarmynd um mörgæsirnar á Suðurskautslandinu, þvílíkt góð og alveg frábær myndataka, og mælum við svo sannarlega með henni.
Sjáumst!
-
Jóhanna
6 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Hlakka til að sjá ykkur-og kjólinn!!
Sagði Brynhildur — 10 Ágú 2005 @ 9:20
Já, ég hlakka sko líka til!!! Góða ferð heim, elskurnar mínar ;)
Sagði Guðlaug — 10 Ágú 2005 @ 9:54
takk sætu, hlakka til að knúsa ykkur :-)
Sagði Jóhanna — 10 Ágú 2005 @ 9:59
hæ. tókst þú mannerfðafræði? er þetta erfiður kúrs?
Sagði Gréta — 30 Ágú 2005 @ 6:41
Ég tók hann ekki, en hann er alla vega ekki erfiðari en sameindaerfðafræði og fer í mikið af sömu hlutum.
Sagði Johanna — 30 Ágú 2005 @ 8:38
ég ætla einmitt ekki að taka sameindaerfðafr, við vorum í dag í kynningu fyrir aðferðir i sameindalíffr og það á örugglega eftir að vera frekar strembið og það er kennt á ensku. ég frétti að mamma hefði sent þig með klossana mína út… :) heyrumst
Sagði Gréta — 30 Ágú 2005 @ 10:03