- Aftur til Pittsburgh - 30 Ágú 2005
-
Við erum þá komin aftur til Pittsburgh eftir frábæra ferð heim til Íslands - Það var nú ansi erfitt að kveðja og halda til USA og hafa ekki plan um hvenær við komum heim næst. Það er skemmst frá því að segja að allt byrjar á fullu og nú þarf að skrifa styrkumsókn (ég mun að vísu ekki gera það en þarf að vera með) svo ég haldi nú áfram að fá laun.
Fljótlega verða settar inn myndir ásamt ferða- og brúðkaupssögu … Brúðkaupið heppnaðist alveg svakalega vel og skemmtum við Palli okkur konunglega. Ferðin með Boris um landið var líka frábær, fórum í siglingu á Breiðafirði, gistum og í torfbæ á Börmum, fórum í Landmannalaugar, Dyrhólaey, út að borða, spjölluðum langt fram á nætur, skoðuðum “Nýja” Þjóðminjasafnið og fleira skemmtilegt.
-
Eitt svar
Ágúst, 2005
- Kjóll og heimferð - 10 Ágú 2005
-
Náði í brúðarkjólinn minn í gærkvöldi og fór í hann í síðasta sinn fyrir brúðkaup! Hef ekki hugmynd um hvernig ég á að pakka honum rétt, ætla nefnilega að taka hann með mér í handfarangur, vil nú ekki að verðir með skítuga hanska opni töskuna með honum í öryggiseftirlitinu.
Ótrúlegt hvað maður er þrútinn og asnalegur í þessum hita, síðast þegar ég fór í kjólamátun var toppurinn alveg þröngur og ég ætlaði varla að komast í skóna, sem NB voru aðeins of stórir á mig þegar ég keypti þá heima svo það var sett innlegg í þá, en núna (eftir að hafa verið inni í loftkælingu í allan dag og loftkældum bíl!) þá var kjóllinn bara ekkert þröngur, vonum að hann detti bara ekki niður um mig þegar ég kem heim. Ég tók nefnilega eftir því þegar við komum heim í júlí að fötin mín urðu öll víðari, frekar asnalegt!
Annars er það heimferð á morgun, dagurinn í dag fer því í það að ganga frá, borga alla reikninga, reyna að pakka og klára að prenta dagskrána … og helst klára eitthvað af analysunni sem ég byrjaði á í gær. Það tók mig bara 3 klukkutíma að fatta að ég hafði vistað R BATCH skrána, sem ég hafi forritað til að athuga samspil genotypu og reykinga, með Maca línuendingu en ekki Unix, svo þegar ég ætlaði að fara að keyra forritið í skelinni virkaði bara ekki neitt - pirrandi!
Fórum á Aladins í gærkvöldi, það var nú nauðsynlegt áður en komið er heim. Við höfum farið svo oft á þennan stað að brátt fer að líða að því að við verðum búin að prófa alla réttina á matseðlinum. Á eftir fórum við og sáum “The March of the Penquins” í bíóinu í Squirell Hill sem sýnir ekki ekta Hollywood myndir (svona bíó sem sýnir íslenskar myndir, í þau fáu skipti sem nýjar íslenskar myndir koma á markaðinn). Þetta var heimildarmynd um mörgæsirnar á Suðurskautslandinu, þvílíkt góð og alveg frábær myndataka, og mælum við svo sannarlega með henni.
Sjáumst!
-
6 svör
- johannaog.com - 06 Ágú 2005
-
Jæja ég verð að vera duglegri að skrifa hérna áður en að síðunni verður breytt í johannaog.com, Jóhanna er búin að skrifa svo mikið að ég er dottinn út af high-score listanum.
Ég var að klára kúrsinn minn, og þá meina ég kúrsinn minn, því ég kenndi hann og réði því hvað væri farið yfir (innan skynsamlegra marka). Flestir nemendur mínir komu af næstsíðasta ári úr high-school, semsagt 16-17 ára krakkar í svona “sumarbúðum” í CMU. Þau voru í prógrami þar sem þau taka kúrsa á háskólastigi (samt ekki eins og í HÍ, meira eins og 5. bekkur í MR en þó miklu auðveldara) og fá einingar fyrir. Mér skilst að 6 vikna prógram kosti hátt í sex til sjö kílódollara, góðan daginn!
Ekki það að mér finnist það eitthvað slæmt því ég fékk betur borgað fyrir þennan mánuð, auk þess sem þetta er mikilvæg reynsla þegar það kemur að því að sækja um vinnu í framtíðinni. Ég verðlaunaði mig (og Jóhönnu) eftir þetta afrek með því að fá mér nýja digital myndavél, Canon EOS Digital Rebel XT (eða EOS 350D í Evrópu). Þetta er sko flottasta flott, 8.2 megapixlar og SLR vél ólíkt flestum öðrum digital vélum. Þar sem að þetta er EOS vél þá er hægt að setja hvaða Canon linsu sem er á hana og hægt að stjórna ljósopinu og opnunartímanum. Helsti kosturinn er hins vegar að hún er ógeðslega fljót að fókusera og myndin er tekin um leið og ýtt er á takkann. Við nógu góð birtuskilyrði er hægt að taka margar myndir í röð með því að halda takkanum inni, ég held allt upp í 14 myndir með .3 sekúndu millibili, eftir það er það hálf sekúnda. Ég skelli inn myndum á næstunni, ég þarf líka að láta Jóhönnu kenna mér á allar stillingarnar á henni.
Annars er það helst í fréttum að við erum rétt ókomin heim, bíllinn fór í viðgerð, ég er kominn með kreditkort og Jóhanna hrópar “hættu að skrifa” svo að ég geti byrjað að búa til pizzubotn. Meira um það síðar.
-
4 svör
- Gleði - 06 Ágú 2005
-
Í dag eru Erling og Sigrún vinir okkar að fara að gifta sig. Við Palli sendum þeim innilegar hamingjuóskir frá Pittsburgh.
Knús og kossar ;-)
-
Engin svör
- Vika! - 05 Ágú 2005
-
Það er vika þar til við lendum í Keflavík! Í gær ákváðum við að breyta aðeins til og í stað þess að fara á Aladins fórum við á The China Place á Walnut St. það er frekar fínn staður og mjög góður matur. Ég fór líka í Victorias Secret og keypti mér nýja IPEX demi og hann er massaþægilegur, örugglega bara besti haldari sem ég hef átt, hvorki meira né minna!
Í dag er spáð rigningu hér í Pittsburgh, og erum við Palli mjög fegin. Það hefur verið alveg hrikalega heitt og ekki veitir af að kæla og hreinsa aðeins loftið.
Kíkið á mig hér.
-
Engin svör
- Salt Lake City - 04 Ágú 2005
-
Það er komið á hreint að ég verð með fyrirlestur í Salt Lake City fimmtudaginn 27. október 2005, klukka 14.15 á ráðstefnu The American Society of Human Genetics. Var að vafra um listann af fólki sem verður með fyrirlestur eða plakat og er nú þegar búin að finna þrjá Íslendinga - gaman að því.
Ég er strax orðin stressuð!
Annars er bara vika í heimferð og við skötuhjú orðin mikið spennt. Förum með bílinn í smurningu og viðgerð á morgun, þurfum að vera mætt með hann klukkan 7 í fyrramálið, til að vera fremst í röðinni. Kerfið er nefnilega svo asnalegt hérna, ef maður þarf að láta laga bílinn sinn og ætlar að panta tíma í skoðun þá fær maður bara að vita að maður geti komið með hann milli 7 og 10. Síðast þegar við fórum með bílinn í viðgerð mætti Palli með hann klukkan 10 þannig að við fengum hann ekki aftur fyrr en klukkan 9 um kvöldið, við höfðum hringt í þá klukkan 5 og þá voru þeir rétt að byrja að kíkja á bílinn! Ótrúlega skrýtið hvað hlutirnir ganga stundum hægt fyrir sig hérna.
Palli var með lokapróf í dag og er að fara yfir próf akkúrat núna - þvílíkt stuð! Til að fagna misserislokum er planið að fara á Aladins í kvöld.
-
3 svör
- Skólinn búinn ;-) - 03 Ágú 2005
-
Nú er maður bara búin með eitt ár af doktorsnáminu. Var að fá út úr prófinu (9,9) og úr kúrsinum í heild 9,3 sem þýðir A. Ég hata samt þetta bókstafaeinkunnakerfi, það segir nú ekkert voðalega mikið en hvað um það. Finnst það frekar heimskulegt, þeir reikna út einkunnina manns í prósentum, breyta henni í bókstaf og breyta svo bókstafnum yfir í tölustaf, til dæmis fær maður 4 punkta fyrir hverja einingu í kúrsi sem maður fékk A í. Þessi kúrs var 3 einingar þannig að ég fékk 12 punkta fyrir hann.
Ótrúlegt að á miðvikudaginn í næstu viku, þann 10. ágúst er ég búin að búa í Pittsburgh í eitt ár og mér sem finnst svo stutt síðan ég kom hingað fyrst og var að drepast úr stressi að þetta myndi nú ekki ganga en viti menn ætli þetta hafi ekki bara gengið ágætlega: Kúrsavinnan hefur gegnið vel, þó að mér hafi nú fundist kúrsarnir hérna misgóðir! GSR vinnan líka, fyrsti höfundur á einum pappír og sá þriðji á örðum. Og síðast en ekki síst þá læt ég Palla ekki tala fyrir mig ensku í framtíðinni, og ég sem var alltaf svo léleg í ensku … ef mig minnir rétt þá fékk ég 6,5 á samræmda prófinu í ensku í 10. bekk.
Næsta vetur verður svo aftur mikil kúrsavinna og síðan verða síðustu tvö árin bara vinna í doktorsverkefni og rannsóknum. Í júní næsta sumar fer ég í “Preliminary exams” og þá er prófað úr öllum kúrsum yfir tvö ár (smá MR stemmning að lesa upp gamalt efni!), það eru þrjú próf (held ég), fræðilegt, hagnýtt og sérsvið og svo eitthvað munnlegt líka.
Jæja, 8 dagar í brottför heim til Íslands! Og nóg að gera þangað til.
-
4 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
