Teningaspilið - 21 Júl 2005

Ég held ég sé að drepa krakkana sem eru í tíma hjá mér. Ég setti fyrir próf í dag og það gekk ekkert alltof vel þrátt fyrir að hafa verið alltof létt. Þegar ég var í MR þá át maður svona lagað í morgunmat og bað um meira. Svo byrja runur og raðir á morgun, sem er mjög skemmtilegt efni ef maður fattar hvað er í gangi.

Titillinn á færslunni vísar hins vegar til spils sem ég átti og á enn. Það samanstóð af smá kassa úr tré og tölustöfunum 1 til 12 sem hægt var að snúa við. Tveimur sex hliða teningum var varpað og tölum snúið við sem mynduðu summuna af teningunum. T.d. ef 7 kom upp mátti snúa við 7, 6 og 1, 5 og 2, u.s.w. Markmiðið var að snúa öllum tölunum við, ef ekki var hægt að snúa við tölum þá endaði leikurinn. Ég held að ég hafi spilað þetta svona þúsund sinnum, ef ekki oftar.

Stóra spurningin er hverjar eru líkurnar á því að vinna? Það fer auðvitað eftir strategíunni sem er beitt. Í aðalatriðum er best að reyna að snúa við sem hæstum tölustöfum, fyrst einum, síða prufa summu af tveimur &c. Ég, David og Alex vorum að pæla í þessu í hádegismatnum, þegar við ákváðum að skrifa bara forrit sem spilar leikinn. Hálftíma síðar var forritið komið sem spilaði milljón leiki á fimm sekúndum og voilá: vinningslíkurnar eru ca. 1/330.

Það er líka mjög hressandi að vita til þess að í ca. 5% tilfella er hægt að klára leikinn í einu teningakasti, t.d. að eiga bara 12 eftir. Ef summa tölustafanna sem eftir eru er lögð saman fæst að hún verður að meðaltali ca. 35.

Við erum að vinna í því að stofna spilavíti þar sem hægt verður að spila teningaspilið og tapa feitt.

Palli Palli

Svör

Engin skilaboð enn sem komið er.

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527