- Veðrið - 19 Júl 2005
-
Það er fátt í fréttum nema að veðurfræðingarnir lofuðu að rakinn myndi minnka í kvöld, vona að það gangi eftir. Rakinn var reyndar ekki svo rosalega slæmur í gærkvöldi svo að við nýttum tækifærið og elduðum íslenskan lax. Þar sem maður hefur nú ekkert svakalega mikla orku í þessum hita (hún fer bara öll í að svitna, þvílíkt ógó!) keyptum við bara meðlæti í Whole Foods, alveg svakalega gott kartöflusalat … næstum jafngott og mitt … hehe!
Annars erum við ferlegir lúðir og erum búin að tuða mikið yfir því að Whole Foods sé ekki með svona áleggs Deli - svona þar sem maður getur látið skera niður alls konar gott kjöt í sneiðar í hvaða þykkt sem er, þunnskorin kalkkúnabringa er þvílíkt góð á samlokur - en viti menn auðvitað var þetta hægt. Skil ekkert í því að við höfum ekki tekið eftir þessu fyrr, förum nú bara í búðina a.m.k einu sinni í viku. Jæja, hvað um það, þar eð við tókum loks eftir þessu skelltum við okkur auðvitað á dýrindis kalkúnabringu.
Á síðasta laugardag varð nú ekkert úr bíóferðinni. Fórum á The Waterfront en fleiri virtust vera með sömu hugmynd og við, allt fullt á öllum veitingastöðum og meira en tveggja og hálfstíma bið, það var líka uppselt á allar myndir sem okkur langaði á í bíóinu. Við brunuðum því upp í Squirell Hill, fengum okkur að borða á Alladins og fórum svo í Barnes & Noble, kíktum á Harry Potter staflana og ég keypti mér blað um brúðkaupsskreytingar.
-
Jóhanna
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Svör
Engin skilaboð enn sem komið er.
Skilaboð frá þér